Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Blaðsíða 20
Paul (jallicci ý nátícfi tíi 4ciuiam Framhaldssaga G. Jensson þýddi Það heyrðust þung fótatök í ganginum. Ovenecka kapteinn æddi inn í herbergið. Augu hans skutu gneistum. Hann hélt um skammbyssu í vasa sínum og á hæla hans fylgdi Virslany más- andi og blásandi. Heidi stóð við vegginn og var að hníga niður. Hiram gekk til hennar og studdi hana. „Dreng- urinn er horfinn,“ sagði hann. „Við komum hingað til þess að líta á hann, en þá er hann horf- inn.“ „Tausend Donner!“ hrópaði kapteinninn. „Það er ómögulegt, „hann hlýtur að vera hér.“ Þeir fáu gestir, sem eftir voru komu nú á vettvang og dreifðu sér við að rannsaka íbúðina hátt og lágt, en árangurslaust. Hiram þaut niður stigana. Þar var eng- an að sjá. Klukkan var hálf tólf. Ljós logaði hjá dyraverðin- um, en hann steinsvaf fram á arma sína. Hann þaut út á göt- una. Þar var dimmt og mann- laust. Þrír leigubílar stóðu við gangstéttina og bílstjórarnir sátu í þeim hálfsofandi. Skammt neðar í götunni var leigubíll að leggja af stað. Hann ók framhjá götuljósi og Hiram sá manninn með falska skeggið bregða fyrir. Hiram tók sprettinn, en hann var sekúndu of seinn. Bíllinn jókferð- ina og hvarf fyrir næsta horn. Hiram sneri sér að bílstjórun- um og öskraði upp í eyru þeirra að barni hefði verið stolið. Hefðu þeir orðið nokkurs varir. Hvort þeir hefðu séð konu og skeggjað- an mann. Þeir gláptu á hann og svo hver á annan. Þeir skildu ekki orð í öðru en tékknesku. „Helv. aularnir,“ hrópaði Hir- am, hann þaut inn aftur og vakti dyra\ýirðinn, en hann skildi held- ur ekki ensku. Hann þaut því aftur upp í íbúðina, en þar stjórnuðu kapteinninn og Virs- lany atburðunum, en Heidi sat hjá fóstrunni, hafði fengið slæmt taugaáfall. „Niðri finnst ekkert spor. Dyravörðurinn sefur. Bílstjór- arnir, sem bíða fyrir utan, sváfu einnig, — og enginn skildi neitt af því, sem ég sagði. „Landamærunum er lokað,“ sagði kapteinninn skarpri röddu. Ég hefi lokað þeim og engin mannleg vera sleppur yfir þau. Doktor Virslany var stöðugt í símanum og talaði eins og sá, er valdið hafði. Hann ljómaði ekki lengur af innri kæti og lífsgleði. Auguhans voru ógnþrungin og svipurinn á feitu andlitinu harður og ein- beittur. „Lögregluforinginn verð- ur hér eftir augnablik,“ sagði hann. „Heidi, hvað segir Jóhanna?“ spurði Hiram. Aftur leit hann nábleikt andlit hennar og ótta- slegið augnaráð, sem svo oft áð- ur hafði birtzt honum í draumi. „Hún heyrði ekkert og var einskis vör. Peter var hér þegar hún slökkti ljósið og sofnaði.“ Hún sneri sér að Virslany: „Anton, hringdu í Mario og segðu honum að koma.“ „Sími Aquila greifa svarar ekki,“ rumdi í dr. Virslany. Einkennisklæddir menn komu æðandi inní íbúðina, hermenn og lögregla. Ovenecka kapteinn skyrpti út úr sér fyrirskipunum eins og vélbyssa, og dr. Virslany greip í hálsmálið á lögregluforingja og þrumaði yfir hann skipanir. Hiram stóð á miðju gólfinu og hugsanir hans voru á ringulreið. Hann var fullur aðdáunar á þess- um tveimur áhrifaríku mönnum og hinum snöggu viðbrögðum þeirra. Ef hægt væri að stöðva barnsræningjana mundi þeim takast það. Hann hélt sig hafa vissu fyr- ir hver hefði stolið barninu og hvernig það hefði skeð. En hann gat ekkert aðhafst; hann stóð aðeins í sömu sporum og enginn tók eftir honum, — nema Heidi. Skyndilega hljóp hún til hans, lagði hendur um háls honum og hrópaði: „Ó, Hiram, Hiram! Hjálpaðu mér. Finndu hann, þú, sem hefir hjálpað okkur einu sinni áður.“ Og hún hallaði sér að brjósti hans og grét. * Svo það var þá hann, sem Heidi leitaði til. Aldrei á ævi sinni hafði Hiram fundist hann vera eins mátt- vana. Hann var útlendingur í borg, þar sem talað var óskiljan- legt tungumál. Hann skildi hrafl í frönsku og þýzku, en tékk- neskan var honum algjörlega ó- skiljanleg, og þar að auki var hann ekki leynilögreglumaður, en hafði eytt þriðja hluta ævi sinn- ar sem prófarkalesari á rit- st j órnarskrif stof u. Til þess að hafa upp á barn- inu, þurfti vit, reynslu og vald og hann vissi að allt þetta skorti hann. Þarna gat Virslany notið sín, með reynslu sína í hinu flókna undirferli og bragðaleik þessa lands; eða þá Ovenecka kapteinn, stjórnmálamaður, og hátt settur í hernum, en ekki Holliday. Honum var einnigfyr- irmunað að tala við Reck og sækja ráð til hans, því kapteinn- inn hafði tekið þagnarheit af öll- um viðstöddum, ef orðrómur kæmist á kreik, var hætta á að drengurinn yrði drepinn. Þótt hann gæti aflað sér ýmissa upp- lýsinga hjá Heidi, gat hann ekki sagt henni grun sinn, sem raun- ar var orðin vissa, því Hiram var í engum vafa um að d’ VÍKINGUR 182

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.