Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Qupperneq 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1967, Qupperneq 23
Hiram. „Ég veit, — ég veit það!“ „Segið okkur, Hiram, hvað vitið þér?“ „Ég veit hvar drengurinn er, eða hvar hann var, — er ennþá, ef það er ekki of seint.“ Hann skalf í hnjáliðunum og augu hans á bak við stálspangar- gleraugun báru með sér hversu æstur hann var. Hinn lágvaxni greifi greip þéttingsfast í axlir hans: „Er þetta satt, vinur minn? Heidi hefur skýrt mér frá því, hvernig þér hjálpuðuð henni í London — og ég er reiðubúinn til aðstoðar nú þegar, en verið aðeins rólegur. ..“ Framkoma greifans hafði ró- andi áhrif á Hiram. „Alveg rétt, en komið án tafar, áður en það verður of seint. Komið bæði.“ Þau fylgdu honum eftir, undr- andi, en smituð af ákafa hans. Hann hljóp upp stigann og tók þrjú þrep í skrefi, að dyrunum að íbúð frú Ovenecka. „Berjið að dyrum,“ hvíslaði hann að Heidi. „Eruð þér nú viss í yðar sök? Þér hljótið að vera genginn af göflunum, kæri vinur,“ sagði Mario d’ Aquila greifi. „Nei, Nei!“ svaraði Hiram ákveðinn. Núna veit ég hvað ég geri. Ég var blindur áður, en nú sé ég ljóst. Hann hlýtur að vera hér!“ Heidi barði að dyrum. „Wer ist da?“ „Svarið Heidi,“ sagði Hiram hraðmæltur. „Die Heidi, die Heidi ist da!“ svaraði Heidi syngjandi rómi, eins og um kvöldið fyrir nokkr- um dögum. „Því miður, það má ekki trufla frúna.“ Hiram benti á hurðina byrst- ur á svip: „Við brjótum hana upp. Greifinn henti sér fyrst á hurðina. Það var auðsjáanlega töggur í honum, þótt grannur væri, því hurðin nötraði við, og þegar Hiram henti sér á hana af öllu afli, hrökk speldið frá og þau hentust inn. Hin háa sérkennilega hjúkr- unarkona og frú Ovenecka stóðu VÍKINGUR iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuimiiiiiiiiiiimiui SPARaSJÓOUR VÉLSTJÓRA Bárugötu 11 Slml 16593 Pósthólf 425 Xr Annast öll venjuleg spari- sjóðsviðskipti. Opið daglega kl. 13.30—17.30 föstud. 13.30—18.30 lokað laugardaga. mmmmmmmmmmmmmmmmmii i oooooooooooooooooo HÖFUM VARAHLUTI OG VEÍTUIV/ VIÐGERÐARÞJÓNUSTU FYRIR BRYCE olíuverkin iöalumboBiB 8. Stefánsson & Co. h.f., Grandagarður — Sími 15579 OOOOOOOOOOOOOOOOOO sitt hvoru megin við eldstæðið, andlit þeirra voru afmynduð af heift. Hiram leit varla á þær, en hljóp rakleitt til svefnherbergj- anna. Þar fundu þau Peter liggj- andi náfölan í rúminu, augsýni- lega undir áhrifum svefnlyfja. Hiram greip hann í fang sér. „Jæja, vinurinn, þá höfum við þig.“ Framhald. Um landsins gagn og .. . Frh. af hls. 138 vegar bjartsýnn (hans er líka framtíðin) og taldi engin vand- kvæði á aukinni flugþjónustu til allra þeirra staða, sem hefðu not- hæf lendingarskilyrði. Þetta var fróðlegt erindi um gamalt vandamál, samgöngur við dreifbýlið. Vandamál, sem alltaf verður að leysa í sem beztu sam- ræmi við aðstæður og breyting- ar á lífsvenjum. Þrjú til fjögur strandferða- skip á fastri áætlun leysir það ekki á viðunandi hátt, hvorki hvað snertir þarfir fólksins né á fjárhagslegum grundvelli. Hinar vaxandi samgöngur á landi og í lofti hafa kippt fótum undan þessari útgerð, sem ekkert mátti missa og líkur til að þær geri það ^enn frekar á næstu árum. Eins til tveggja mánaða lokun á fjallvegum réttlætir ekki þessa þjónustu, það er hægt að leysa málin á ódýrari hátt þegar (og ef) þörf krefur. Við höfum í flestum tilfellum fjölda skipa í Reykjavík eða öðrum stöðum á landinu, íslenzk eða erlend, sem tiltæk eru, þegar vegir lokast. RICHARD BECK: KvöLdskin (Minningamynd) Lygnra voga blikar bró, bjarmi um tinda háa, út með ströndu stirnir á strauma fagurbláa. Þessi œsku yndismynd enn þá vermir hjarta; hlœr við sjón í hugans lind hafið geislabjarta. 135

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.