Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 5
Ungir menn fá fræð'slu um tunnur með eldfimum efnum og livernig bregðast skuli við ef eldur brýzt út með þennan liættulega farin. fá fræðslu og verklegar æfingar í eldvörnum. — Má sameina þessa kennslu gúmmíbáta-námskeiðum og ætti þannig eins dags námskeið að vera skylda áður en skráning fer fram. Hér á landi hefur fræðsla á sviði eldvarna verið mjög af skornum skammti fram til þessa og hafa raunverulegar slökkviæfingar að- eins náð til slökkviliða og varðskipa- deildar Stýrimannaskólans í Rvík. Bókakostur er lítill, en þess skal samt getið, að árið 1964 kom út Ágrip af slökkvitækni eftir Guð- mund Karlsson, en sú bók er eink- um ætluð slökkviliðum, þó að þar sé margt um eldvarnir, sem á erindi til allra. Innan ramma námsreglugerða beggja stýrimannaskólanna er auð- vitað vikið að þessu viðamikla efni. Hefi ég t.d. látið nemendur mína í Stýrimannaskólanum í Vestm.eyjum lesa 10 bls. fjölritaðan ritling, sem ég hefi tekið saman um eldvarnir um borð í skipum. Takmarkaður tími til alls námsins og svo skortur fjár og aðstöðu til raunverulegra slökkviæfinga takmarka einkum víð- tækari kennslu í þessum efnum. Þó hafa verið sýnd einföld slökkvitæki og raunhæf notkun þeirra hjá slökkviliði Vestm.eyja, en endurtek- in slys sanna, að kennsla um svo viðamikið efni nær of skammt. Eft- ir undangengin skelfileg slys af völdum elds er því fastur eldvarnar- skóli og stöðug og aukin fræðsla í þessum efnum knýjandi nauðsyn og gæti sparað þjóðinni fjölda manns- lífa og mikil efnaleg verðmæti. — Mörgum mun sennilega þykja í mik- ið ráðizt að gera tillögu um nýjan skóla með ríkisframlagi nú á erfið- um tímum, en með það í huga að mikil verðmæti gætu sparast og svo þá staðreynd, að menntun atvinnu- stéttanna er í mörgu tilliti langt á eftir því sem eðlilegt gæti talizt (Til fræðslumála í sjávarútveginum fara nú tæpar 16 millj. kr. af rúmum milljarði sem til fræðslumála fara) þá á þessi stofnun tvímælalaust rétt á sér. Slíkur skóli myndi auk þess koma mun fleiri einstaklingum og fyrirtækjum til góða, en þeim, sem eru í beinum tengslum við sjóinn. Óskir sjómanna ganga nú þegar í þessa átt og hefi ég iðulega orðið þessa var. 1 síðasta tbl. Sjómanna- blaðsins Víkings skrifar Guðmund- ur Hallvarðsson stýrimaður á v.s. Árvakri athyglisverða grein, þar sem hann bryddar einmitt á þessu máli. Hvetur Guðmundur í grein sinni til aukinnar kennslu í eldvömum á sjó, og sem vakandi maður í miðju starfi finnur hann að sjálfsögðu hvar skór- inn kreppir. 1 eldvarnarskóla, sem hér starfaði allt árið þyrftu að kenna sérfróðir menn með tækni- eða verkfræði- menntun í þessu fagi. Þar þyrftu að komast á lengri og skemmri nám- skeið fyrir nemendur Stýrimanna- skólanna, nemendur Vélskólans, sjó- menn alla og þá einkum yfirmenn allra skipa, slökkviliðið frá bæjum og sveitarfélögum og starfshópa ým- issa fyrirtækja. Þó að slíkur skóli hefði aðsetur í Reykjavík og væri í nánum tengsl- um við slökkviliðið þar og Vélskóla íslands, er ekki þar með sagt, að skólinn þyrfti að vera rígnegldur í Reykjavík. Kennarar og starfslið þyrftu auðvitað að ferðast um land- ið til kennslu og æfinga. Þá myndi þessi stofnun geta orð- ið miðstöð allrar fræðslu og upplýs- inga varðandi eldvarnir. Hefur oft reynst erfitt að fá kvikmyndir og annan lifandi fróðleik um þetta efni. Hið bezta sem hefur verið á boð- stólum er kvikmynd, sem BP hér á Hér er vcriiV aiV æfa menn viiV aiV slökkva eld í vélarúmi ineiV froiVu- sliikkviefni. VÍKINGUR 139

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.