Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 8
Frá Færeyinfiahiifn í (írænlandi. En nú gerðist það aftur, tíu árum seinna, að ég var svo hepp- inn að geta slegist í leiðangur til Grænlands öðru sinn. — Orsök þess var sú, að í fyrra haust fengu amerískir verktakar, sem sjá um framkvæmdir á vegum bandaríska hersins í Grænlandi, íslenzka fiskibáta á leigu til þess að flytja vörur frá stórum flutn- ingaskipum, þaðan sem þau höfðu lægi, og til þeirra staða sem notk- un eða sóun varana átti að fara fram. Einn þeirra staða var Kulusuk (hef ekki getað fundið rétta merkingu nafnsins) í Krosseyja- héraðinu (Angmagssalik distr.), M.a. var fenginn til þess fiskibát- urinn „Hugur" GK ??? frá Sand- gerði. Skipstjóri var Sigurður Arngrímsson (Fr. Bjarnasonar) frá Isafirði, og stýrimaður Jón Magnússon úr Reykjavík. Aðrir af skipshöfninni voru: I. vélstj. Gísli Hansen, Rvík, II.vélstj.Þor- kell Ingimarsson, Rvík og matsv. Gunnar Hansen, Rvík. Skipshöfn þessi lagði af stað á Hug frá Hafnarfirði þ. 9. sept. 1958 og kom til Kulusuk þ. 14. Þegar þangað kom töldu ráðamenn þar sig ekki hafa þörf fyrir Hug til flutninga, því annar ísl. bátur, „Pálmar,“ var þar fyrir. Afréðu þeir því að senda Hug vestur fyr- ir Grænland og allt norður til Langafjar&ar (Kangerdulgssuaq, sem Danir kalla Söndre-Ström- fjord) í Greipum í Norðursetu, og átti Hugur þá að vera þar í flutn- ingum milli flugstöðvarinnar við botn Langafjarðar og uppsátra hersins við EÍSisfjör'ð (Itivdleq), sem liggur utar og norðar. Tóku þeir á Hug til flutnings, vestur með sér frá Kulusuk, eitt- hvað 50—60 tunnur af sementi og nokkrar vatnsslöngur ásamt fleiru smávegis dóti. — Var svo lagt af stað suður með landi frá Krosseyjum þann 16. sept. og lentu þeir í hverri svaðilförinni eftir aðra sökum illviðrahams sem þá gekk yfir. Komust þeir loks til Sisimiut (Grenjastaður,sem Dan- ir kalla Holstensborg) þann 25. október. Var þá afráðið að skilja 142 bátinn þar eftir og fara flugleiðis heim. — Fór svo um sjóferð þá. Má segja að þessir íslenzku sjó- menn hafi orðið að leggja á sig mikið erfiði og hætturfyrir slæm- an árangur af vanhugsuðum til- gangi. En nú vildi eigandi Hugs, Kristófer Oliversson skipstjóri, fá bát sinn aftur heim. III. I apríl s.l. hitti ég kunningja minn, Jóhann Pétursson rithöf- und. Tjáði hann mér að nú ætlaði hann að láta þann draum sinn rætast að fá að sjá Grænlands feikna fjöll og fögru strandir. Hann væri búinn að ráða sig sem matsvein á bát sem orðið hefði innlyksa í Grænlandi í fyrra, og færu þeir flugleiðis í byrjun júní að sækja hann. Yrði ílogið til Langafjarðar með viðkomu í Kulusuk og þvert yfir Græn- landsjökul og svo þaðan með þyrlu til Sisimiut. Ég sló því fram við hann hvort hann gæti ekki útvegað mér skipsrúm sem háseta í þessum leiðangri. Hann taldi tormerki á því, en stýrimann vantaði, en ég var ófær til þess. Nokkru síðar talaði Jóhann við mig símleiðis frá Grindavík og taldi mig á að gerast stýrimaður, því ég þyrfti ekki nema vikuna til þess að standast nauðsynleg próf í þessu skyni. Ég taldi það elcki hægt. En samt hvatti hann mig til þess að tala við Jón Magnús- son, sem yrði skipstjórinn í för- inni og verið hafði stýrimaður í leiðangrinum í fyrra. Tókst mér eftir nokkra fyrirhöfn að finna Jón, sem sagði mér að eiginlega væru allir ráðnir nema stýrimað- ur, en hann vildi gjarna hafa mig með og lofaði hann að láta mig vita ef eitthvað breyttist svo ég gæti fengið skipsrúm. Leið svo og beið að komið var fram í júní og ekki var ferðin hafin. Fór svo að Jóhann Péturs- son varð að segja upp matsveins- starfinu, því hann var ráðinn á síld norður á Raufarhöfn og bauð þá Jón mér starfið í staðinn, ef ferðin yrði farin. Nú leið bæði júní og júlí, en ekki varð af förinni, en ég var staðráðinn í að komast með hve- nær sem hún yrði farin. Var ég búinn að fá loforð verkstjóra míns, (en ég vinn hjá Reykja- víkurbæ) um að gefa mig eftir þann tíma sem ferðin tæki. Loksins, föstudaginn þann 14. ágúst sl. kom verkstjóri minn, Jón Ólafsson, til mín þar sem ég var að raka grjóti af götu í einu hverfi bæjarins, og tjáði mér að nú væri komið að Grænlandsferð- inni. Tilvonandi skipstjóri minn, Jón Magnússon, biði eftir mér í símanum og vildi fá mig með sér VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.