Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 12
STÖDUGLQKISKIPA IHHBI Frá Skij»»sko«)iiii IKíklsins. ■nni 1. Inngangur- Dagana 29. október til 1. nóv- ember 1968, hélt sérnefnd Al- þj óðasiglingamálastof nunarinn- ar, IMCO, áttunda fund sinn í London. Þátttakendur í störfum þessarar nefndar eru frá eftir- farandi 17 löndum: Bandaríkjun- um, Belgíu, Bretlandi, Canada, Danmörku, Finnlandi, Frakk- landi, Hollandi, Islandi, Ítalíu, Japan, Noregi, Póllandi, Spáni, Svíþjóð, Sovét-Rússlandi og Vestur-Þýzkalandi. Ennfremur starfar fulltrúi frá Matvæla- og Landbúnaðarstofnuninni (FAO) í nefndinni, sem ritari, ásamt starfsliði IMCO. Hjálmar R. Bárðarson, skipa- skoðunarstjóri, var á þessum fundi endurkjörinn formaður nefndarinnar, og G. C. Nickum frá Bandaríkjum Norður Am- eríku (USA), var endurkjörinn varaformaður. Nefndin hefur nýlega afgreitt 146 tillögur um alþjóðleg stöðugleika- mörk fyrir fiskiskip og ýms atriði þeim iskyld, m. a. um ís- ingu skipa o. fl., en mörg þeirra eru þó áfram á dagskrá nefndar- innar, því þau krefjast frekari athugunar og rannsóknar. Á þessum fundi nefndarinnar voru sýndar tvær kvikmyndir. Norska sendinefndin sýndi kvik- mynd af tilraunum í tilrauna- stöð með að hvolfa líkani af fiski- skipi, sem látið var sigla í reglu- legum sjó á móti. Þessum rann- sóknum er nú haldið áfram í Noregi og verður síðan lögð fyrir nefndina skýrsla yfir árangur þessara rannsókna. Hin kvikmyndin, sem sýnd var, var af frönskum tilraunum með líkan af tuna-fiskiskipi, sem statt er á bylgjutoppi, en skýrsla yfir þessar rannsóknir var lögð fyrir nefndina og verður rædd frekar hér á eftir. 2. Fríborð fiskiskipa. Nefndin hefur á undanförnum fundum rannsakað fríborð fiski- skipa og áhrif þess á stöðugleik- ann og almennt öryggi fiskiskipa og áhafna þeirra að störfum. Á síðasta fundi nefndarinnar var samþykkt að fríborð fiskiskipa yrði að vera nægjanlegt til að uppfylla eftirfarandi skilyrði. a) Að tryggja að skipið geti upp- fyllt þær lágmarkskröfur um nauðsynlegan stöðugleika fiski- skipa, sem nefndin hefur þegar samþykkt og gengið frá, sem til- lögu. b) Að tryggja nægjanlega mikið öryiggi fyrir menn, sem vinna þurfa á opnu þilfari við fisk- veiðar, og c) Að tryggja svo sem verða má öryggi gegn því, að sjór komist inn í vatnsþétt lokaða hluta skipsins, og þá samtímis tekið tillit til styrkleika og þéttleika lokunarbúnaðar, svo og áhrifa frá sjávarfylltu þilfari á stöðugleik- ann, þ. e. a. s. þegar sjór fyllir þilfarið, og bindst þar um stund áður en hann nær að renna út aftur. Á þessum fundi ræddi nefndin VlKINGUR Fífill fullhlaðinn inn með loðnu.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.