Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 18
MÝTT SKIP „Helga Guðmundsdóttir11 Stœrsti fiskibátur Yestfjarða, m/s „Helga Guðmundsdóttir,“ kom til heimaliafnar sinnar, Patreksfjarðar, í byrjun marz s.l. Báturinn var smíðaður í skipasmíðastöð Erlings og Bjarna á Akranesi. Teikningu af skipinu gerði Benedikt Erlingur Guð- mundsson. —■ Samkvæmt nýjum mælingarreglum fiskislcipa er „Helga“ 322 brúttó- lestir að stærð. Aðalvélin er MWM 990 hestöfl. í reynsluför komst gangliraðinn upp í 13 mílur. Tvær „Fromhut“ 105 hestafla Ijósavélar framleiða raforku fyrir skipið, er það riðstraumur, 220 volt og 50 rið. — Allar vistarverur eru hitaðar með rafmagni, og eru ibúðir allar aftan miðskips. — Skipið hefur tvær þver- skrúfur og er búið öllum nýtízku fiskileitartækjum, tveimur radartækjum og veg- mæli af „Sallog" gerð. Fullkomin áliöld eru um borð til viðgerðar á tækjum og vélum skipsins. Er skip og búnaður allur hið vandaðasta og til mikilla fyrir- myndar. H.f. „Yesturröst gerir skipið út, og er Finnbogi Magnússon skipstjóri skipsins, en 1. vélstjóri er Búi Guðmundsson. þrjár raðir af hringlaga skurðum, sem voru í tengslum við sjóinn. Platon segir líka, að um miðbik borgarinnar hafi komið þar upp bæði heitt og kalt vatn. Prófessor Galanopoulos hefur eftir frásögnum Platons sett sam- an sögu eyjarinnar Theru. Platon segir að eyjan hafi sokkið. í sæ 9000 árum áður en hann fæddist og hafi verið geysi- mikið landflæmi. Galanopoulos lítur svo á að Platon hafi þarna orðið á mikil mistök. Hann telur heimspeking- inn hafa gert sig sekan um óná- kvæmni, bæði hvað snertir tíma- ákvörðun og landstærð, sem mun- ar hvorki meira né minna en 10 faldri ónákvæmni. Framsetning Platons hafði þau áhrif, að menn héldu heilt megin- land hafa farizt þarna með ótrú- lega gamla minoíska menningu. 1 stað þess er hér um tiltölulega litla eyju að ræða, sem líður und- ir lok fyrir miklu skemmri tíma en Platon ákvað. Sú eyðilegging, sem gekk yfir Théru var að víðáttu til sérstætt fyrirbrigði. Haffræðingar hafa fundið eld- fjallaösku, sem þekur gríðarstór svæði á hafsbotni Egea-hafsins. Amerískur vísindamaður, Bruce Heason, hefur sérstaklega kynnt sér þetta. Hann telur gosið, sem átti sér þarna stað, hafi verið mjög svipað gosinu í Krakataus árið 1883 í Indonesíu. Síðara eld- gosið var enn kröftugra. I Indonesíu fórust þá 36000 manns og margar smærri eyja hurfu af yfirborðinu. Þá mynd- uðust haföldur, 35 m. háar. Þess- ar öldur breiddust út og fóru þrisvar umhverfis jörðina, áður en þær jöfnuðust. ösku skaut upp í háloftin í slíku magni að það hafði litar- áhrif á sólsetur allt umhverfis jörðina í heilt ár (Biskups hring- ur). Samkv. athugunum ameríska vísindamannsins telur hann, að gosið á Théru hafi eyðilagt land- búnað mionísku menningarinnar, sem leiddi af sér algjört hrun þessarar menningar á egisku eyj- unum kringum 1400 f. Krist. 1'OnM.KIFAFIMHJH VEKUR ATIIYGLI. Framhaldsrannsóknir leiða í ljós, hvort þetta er Atlantis eða ekki — ef á annað borð verður nokkum tíma hægt að sanna það. En að finna heila mínoiska borg á eyjunni Théra er einn stærsti viðburður fornleifafræð- inga á þessari öld. Vísindamennimir telja að hér hafi verið borg af stærðinni IV2 fermíla með 30000 íbúa. Þeir áttu heima í litlum steinhúsum með tveim til þrem íbúðum. Vísinda- mennirnir hafa líkafundiðsumar- höll einhvers ríks höfðingja. Frá fornleifafræðinga-sjónar- miði hafa nokkuð góðir hlutir gerzt þarna, því að við gosið grófst nær öll borgin í ösku, en askan hefur varðveitt ýmsa hluti allt til vorra daga, sem annars hefðu eyðzt og hefur tekizt að ná mörgum munum óskemmdum upp á yfirborðið. Nokkuð svipað átti sér stað í rómversku borgunum Herculane- um og Pompej árið 79. En þá kom gos úr Vesúvíusi skyndilega öllum að óvörum. Grófst þar fjöldi manna ásamt eignum sín- um í þykku öskulagi. Nákvæmar gipsafsteypur hafa verið gerðar af mannslíkömum í dauðatygjum, en slík för komu fram í öskulaginu eftir fólkið, sem lézt í þessum hroðalegu nátt- úruhamförum. — Eru afsteypur þessar áhrifamiklar og hræðileg- ar í senn og sýna kvalafullan dauðdaga. Fornaldaríbúar eyjarinnar Théru virðast hafa sloppið við þennan hræðilega dauðdaga. Við uppgröft á eyjunni hafa aðeins fundist tvær beinagrindur af mönnum. Einnig finnst ekkert verðmæti úr gulli eða silfri. Gíg- urinn virðist hafa gert boð á und- an sér. Áframhaldandi rannsóknir á minoískum menningarborgum og þá sér í lagi á borginni á gömlu Théru mun kannske alveg á næst- unni leiða til þess að rökræðurnar um Atlantis taki enda og allsherj- ar punktur verði þar á settur. Þýtt úr svenska Sjamannen. Vertu sanngjarn og þolinmóður gagnvart þeim, sem eru gáfaðri og göfugri en þú. 152 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.