Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 20
* Maður nokkur hringdi í tann- lækni og pantaði tíma. „Því miður ekki í dag. „Ég á eftir að fylla 18 holur.“ Að því mæltu tók hann golfkúl- urnar sínar og labbaði sig út á gólf- völlinn. * Norska skáldið Arnulf Överland sagði í einum fyrirlestri, sem hann hélt í Danmörku vorið 1956: „í Noregi notum við þrjú mál. Ríkismál, landsmál og slagsmál!“ Hagnýt sálfræði. Forstjóri nokkur auglýsti eftir einkaritara og fékk sálfræðing til að dæma um hæfni umsækjenda. Þrjár stúlkur sóttu um stöðuna og lagði sálfræðingurinn sömu spurninguna fyrir þær: „Hvað eru tveir og tveir?“ Sú fyrsta svaraði hiklaust: „Fjórir.“ Sú næsta sagði: „Það gætu verið tuttugu og tveir.“ Og sú þriðja sagði: „Það geta verið tuttugu og tveir og það geta verið fjórir." „Þarna sjáið þér,“ sagði sálfræð- ingurinn sigri hrósandi, „hvað sál- fræðin getur verið hagnýt. Sú þriðja hafði mesta gerhygli til að bera. Ég tel hana hæfasta til starfsins." „Hvert er yðar álit ?“ „Ég tek þá ljóshærðu með bláu augun,“ sagði forstjórinn! * Jótar eru ekki sagðir sérlega hrifnir af Kaupmannahafnarbúum. Eitt sinn átti sölumaður frá höfuð- borginni erindi þangað. Hann kom inn í blaðasölu og bað um Kaup- mannahafnarbláð. „Við lesum ekki austantjaldsblöð hérna,“ var svarið. * Sonurinn við föður sinn: „Hérna er einkunnarbókin mín og hérna er ein af einkunnarbókunum þínum, þegar þú varst í sama bekk. Ég fann hana uppi á háalofti.“ * „Konan, sem ég leigði hjá síðast grét þegar ég fór.“ „Það ga?ti nú ekki komið fyrir mig, — ég læt leigjendurna alltaf borga fyrirfram." Hagræðing: — Því íriiður verður að fresta burtför- inni — skipsliöfnin er of fjölmenn. í dönsku blaði stóð nýlega: „Stórveldin prédika sýnkt og heil- agt að þau séu alltaf að berjast fyrir friði.“ „Hvernig væri að skipta einu sinni friðarverðlaunum Nobels á milli þeirra, ef það mætti verða til þess, að þau færu að hugsa um frið í alvöru!“ * „Gafst þú honum ekkert fyrir að bjarga þér frá drukknun?“ „Jú, hundrað krónur. Og hvað sagði hann?“ „Ekkert, hann starði stundarkorn á mig og gaf mér svo fimmtíu krón- ur til baka!“ * Dómarinn: „Er yður ljóst, að með því að hlaupast frá konunni yðar eruð þér að bregðast skyldu yðar; gerast liðhlaupi.“ Sakborningur: „Ekki liðhlaupi, hr. dómari. Ég krefst þess að verða sýknaður og fá að njóta lagaverndar sem flóttamaður frá einræðisríki!“ — Felst hætta í því acV konur gerist stýrimenn? k » c 154 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.