Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Side 37
Rotterdamhöfn. komast undan að finna, líkt og persónuáhrif manna. Áhrif Rotterdam eru margvís- leg, en þó mest einkennandi í verzlun og viðskiptum, fljótri, góðri og yfirgripsmikilli hafnar- þjónustu, þar sem andi athafna og framtaka er áberandi, frábær hagkvæmni, skipulagning og hreinlæti hvert sem litið er, vinnugleðin og afköstin mikil. Þeir skilja og vita og það ljómar upp þeirra starfsíþrótt og vinnu- rythma, að þeir eru að byggja upp hafnarborg, sem á afkomu sína undir hinni hörðu sam- keppni í heimsviðskiptunum, þar sem þjónustan, hraðinn og vinnu- tæknin ráða miklu um árangur- inn. Gleði- og skemmtistaðaborg er Rotterdam ekki í samanburði við margar aðrar borgir, en þar eru að sjálfsögðu dansstaðir, fínir matsölustaðir, kvikmyndahús og næturklúbbar og aðrar lystisemd- ir gjálífsins, og má þar minna á Kinatown, sem er safn gleðihúsa og bara, með skækjur í hverju skoti, þar er lífstakturinn annar en á hafnargörðunum, þó báðir staðirnir einkennist af ys, önn og hávaða. Þó má þar sjá mannlegt líf, bæði á réttunni og röngunni, niðurbrotnar sálir, vonlausar og einmana, ráfa þar um í eirðar- leysi sínu, glæsilegar gyðjur sem ekkert vita hvað þær eiga að gera við glæsileika sinn og hreysti, ber- ast hér fyrir straumi freistinga og nautna, mótstöðulaust til glöt- unar. Þannig fer æfi margra í kapphlaupinu um lífsnautnirnar og veraldargæðin, í darraðadans- inum um gullkálfinn. Þar eins og í spillingabælum stórborganna eru fleiri hendur á lofti til rána, en til hjálpar, og þar fer lítið eftir réttlætinu eða heiðarleikanum. Þegar kúnninn er búinn að hafa skipti á ver- aldarauð sínum og viti og víni og gleðikonum bareigandans, má hann þykjast góður að komast lif- andi út lítt sjálfbjarga, þar týna margir sjálfum sér. Það tekur aðeins tvær klukku- stundir að ferðast þvert yfir Hol- VlKINGUR land eða eftir því endilöngu, og fjarlægð frá stað til staðar eru stuttar, vandima liggur bara í að skipuleggja leiðir og velja staði til dvalar eða dundurs, því af miklu er að velja. Bezt væri að geta tekið ferð um Holland rólega og dvalið sem lengst á hverjum stað. Fjöldi er þar af fögrum stöð- um úti í náttúrunni, sem er fjöl- breytt og fögur. Eins má skoða merkar byggingar, borgir og sögu- staði, söfn, list, þjóðlíf og þjóðar- starf í öllum fjölbreytileika, blómarækt og búskap, markaði og mannamót, sport, sund, siglingar, golf, tennis, veðreiðar, kapp- akstra. Vindmillur, kanala, kast- ala, kirkjur, fólk í þjóðbúningum, á tréskóm. Delft leirvörur, bað- strendur og sjósport. Spurningin er aðeins hvernig á að skipta þessu skynsamlegast niður á dag- inn og tímann. Holland býður upp á milljón möguleika til að gleðj- ast yfir og njóta, og tíminn líður fyrr en varir. Það má fara og hlusta á fræga hlj ómlistarmenn og hljómsveitir, óperettur og ó- perur, og tónleika frá Back og niður í Beatles. Concertgebouw í Amsterdam býður upp á topp class listamenn allsstaðar að úr veröldinni. Já, hér er jazz, dixiland, twist og jafnvel Afro Cuban músik eða valsar og umpa umpa. Ekki er gott að benda á neina borg í Hol- landi og segja hér hefur þú allt, því svo er ekki, en hver staður hefur upp á eitthvað sérstakt að bjóða, en ekki er hægt að skoða þá alla, en það eru þó þrjár borg- ir sérstaklega, sem enginn má láta vera að sjá er til Hollands kemur, Rotterdam, Haag og Am- sterdam, stærstu borgirnar, enda eru þær allar það nálægt hver annarri að það er vandalaust, að- eins klukkutíma ferð í bíl eða lest á milli þeirra, og hverja sem er má nota sem miðpunkt ferðalags- ins um nágrennið eða til alls Hol- lands, eftir því hvernig ferðinni er hagað. Fá lönd hafa upp á jafn auðug og fjölbreytileg söfn af málverk- um, list og gömlum hlutum að bjóða og nálægt hvert öðru og Holland. Til eru þeir hlutir sem ekki fást hvenær sem vill og hvar sem helzt, hve mikið fé sem væri Höfnin í Amsterdam. 171

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.