Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1969, Síða 39
marga viðlegugarða og bryggjur. Um 1870 eru byrjaðar fram- kvæmdir við Binnerhaven, Enter- pethaven og Spoorweghaven, sem eru efstar við fljótið og elztu dokkur hafnarinnar. Svæði þeirra köllum við svæði 1. Smíði þessara dokka lauk 1878 til 1879 og voru þær tengdar járnbrautarkerfi landsins. Notast nú fyrir general cargo og innanlandssiglingar og þjónustu, styttri siglingaleiðir og rútuskip. Koningshaven, frá 1870 er fyi’- ir skip sem ekki komast undir brýrnar. — Persoonshaven og Nassauhaven einnig. Þarna hefur risið upp allskonar iðnaður. Svæði 2. Rinhaven frá 1887 til 1894 og Maashaven eru ætlaðar fyrir línuskipin og innanlands- flutninga og umskipun. Maas- haven er mest notuð fyrir korn og korniðnað, en Wilhelminakade er notuð fyrir farþega og stóru línuskipin og stór flutningaskip, en Katendrechtsehaven er fyrir general cargo og frystivörur. Svæði 3. Waalhaven, ein stærsta dokka veraldar, byggð 1907 til 1931, er notuð fyrir bulkcargo og áburð og getur afgreitt 39 skip við sína 10 garða samtímis, dýpið er 40 fet. Vesturbakki Waalhaven er not- aður fyrir kol, járn, timbur o. fl., en á syðri hlið hennar eru kæli- geymslur og iðnaðarsvæði og skóli hafnarverkamanna, The Dockers Training School og 3 skipasmíðastöðvar. Svæði U. Parkhaven, Sint. Jobs- haven og Schiehaven, byggðar 1890 til 1909 fyrir general cargo og korn, Lloydkade er fyrir vöru og farþegaþjónustu. Svæði 5. Ijselhaven, Lekhaven og Keilehaven frá 1910 til 1915 eru fyrir General cargo, ávexti, húðir, bómull o. fl. o. fl., fyrir S.-Ameríkuskip, Canadalínur og Norðurlandaskip. Keilehaven er iðnaðar- og innanlands siglinga- höfn, Merwehaven var byggð 1923 til 1932 og er stærsta Gen- eral cargo-höfn Rotterdam, stað- sett hægramegin við fljótið, það- an og þangað ér siglt til allra landa og hluta heims og Con- tainersskip ganga þaðan til Eng- lands og Roll on/roll-of-trailers geymslur og skinnageymslur miklar. Svæði 6. Emshaven með dokku 1 og 2 er iðnaðarhöfn og skipa- smíðahöfn og einnig fyrir Gen- eral Cargo, og þar er líka lektu og innanlandsafgreiðsla. Þessar dokkur voru byggðar í síðasta stríði. Prinses Beatrixhaven, byggð 1962 til 1965 og Prinses Margriet- haven er nú fullgerð. Þarna er 40 feta dýpi og iðnaðar- og lager- pláss mikið. Þetta svæði verður í framtíðinni eitt mesta iðnaðar- svæði hafnarinnar með umskip- unar og General Cargo-þjónustu. Svæði 7. Á Schiedam-svæðinu við Nieuwe Waterweg eru3skipa- smíðastöðvar, ristastórar, sem að- eins gera við supertanka og stór- linera með þurrdokkur fyrir 150 þús. lesta skip og aðrar 3 þurr- dokkur í Wilhelmshaven, og þar eru 3 viðlegupláss fyrir stærstu tankskip. Svæði 8. Volcanhaven, byggð 1913, er kolahöfn og General Cargo-höfn og um leið umskip- unarhöfn með 33 feta dýpi, en Koningen Wilhelminahaven er iðnaðar- og skipabyggingarhöfn. Svæði 9 og 10. Er olíusvæði, Erste Petroleumhaven, sem byrj- að var á 1929 með olíuhreinsunar- stöð Shell frá 1936 til 1938 og Tweede Petroleumhaven, sem tók til starfa um svipað leytimeðolíu- iðnað fyrir Shell og Caltex olíu- hreinsunarstöðina, sem hreinsar og vinnur úr milljónum tonna ár- lega í laboratorium sínum og efnavinnslum. Mekog Albatros er þarna líka með stórkostlegan olíu- iðnað. Svæði 11 og 12. Derde Petrole- umhaven, byggð 1954 til 1957 og Batlak St. Laurenshaven og Chemiehaven. 1960 byggði Esso olíuhreinsunarstöð þarna og alls- konar stórkostleg mannvirki í olíuiðnaði hafa risið þar og „Borax plant" í Batlek, og þarna er skipasmíðastöð fyrir risaskip og lagersvæði fyrir kol, brenni- stein, járn o. fl. o. fl. Svæði 13. Europort, sem byrj- að var á í júní 1958 og í desem- ber 1960 kom fyrsti risatankur- inn þangað, dýpi 53 fet. Vierde Petroleumhaven er fyrir enn stærri skip og lagerpláss í tönk- um er þar fyrir 40.000 milljónir tonna, og leiðslur liggja þaðan meðal annars til Frankfurt og víðar. — Vijfde Petroleumhaven með aðstöðu fyrir Gulf Oil Com- pany og olíuhreinsunarstöð og að- stöðu fyrir risaskip. Dintélhaven og Seinehaven eru olíuhafnir, olíuiðnaðarhafnir og einnig er þar cementverksmiðja. Beneluxhaven frá 1965 með ferj- ur til Englands og víðar. Zevende Petroleumhaven er í smíðum með ammoniaks- og olíuiðnaðarverk- smiðju fyrir Esso og Mobil Oil. Brittannidhaven og Maasvlakte, sem byrjað var á 1965 eru enn í smíðum. Þar verður stórkostlegur olíuiðnaður og olíuhreinsunar- stöðvar, dýpi 53 fet og möguleik- ar á stækkunum og dýpkunum í framtíðinni, ef skipin halda enn áfram að stækka. Holland er vel þekkt á heims- höfunum fyrir góð skip og hrað- geng, og fjölbreytni flota þeirra er mikil, eða allar tegundir skipa. Meðalhraði flota þeirra er 14,3 sjómílur. Næstir koma Danir með 14,1 sjómílu, þá Noregur 13,8 og Frakkar 13,7. Til fróðleiks má geta þess að nettótekjur flotans voru fyrir þremur árum 1 million guilden, og árin 1951/1960 voru skipa- tekjur þjóðarinnar að meðaltali helmingur þjóðarteknanna, eða viðskiptajafnaðarins við útlönd. Norðmenn græða líka á sínum flota og tekjur hans aukast stöð- ugt. Við íslendingar seljum okkar skip úr landi og tökum leiguskip á sama tíma, en í loftinu erum við í sókn og eigum kannske eftir að gera þar stóra hluti. Hollenski flotinn var árið 1963 1483 skip eða 4.97 milljónir g.r.t. Hollendingar fylgjast vel með tímanum, og þar í landi eru 800 skipasmíðastöðvar víðsvegar um 173 VÍRINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.