Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 11
Við krefjumst þess að
sjómenn haldi þeim
hlut sem þeir hafa haft
Kjaradeilda sjómanna á Vestfjörðum liefur mikið verið í fréttum fjöl-
miðla. 20. mars, rétt áður en þetta tölublað Víkingsins fór í vinnslu í
prentsmiðju, staldraði blaðamaður daglangt við á ísafirði til að kynna sér
aðstöðu og viðhorf sjómanna í þessari deilu. Hann átti þá viðtal það við
fimm forystumenn sjómanna sem hér fer á eftir. Fimmmenningarnir voru
Gunnar Þórðarson formaður Sjómannafélags ísfirðinga; Grímur Jóns-
son, Rúnar Grínisson og Sigurður Ásgeirsson, sem eru í stjórn og samn-
ingancfnd félagsins, og Pétur Sigurðsson formaður Alþýðusambands
Vestfjarða.
Víkingur: Hvert er upphafið að
þessari vinnudeilu og livað á hún
sér langan aðdraganda?
Grímur: Það er ákveðið að segja
upp samningum á fundi í Sjó-
mannafélagi ísfirðinga í nóvem-
ber...
Pétur: ... 19. nóvember 1979
segir Sjómannafélag ísfirðinga
upp samningum upp við útvegs-
menn um kaup og kjör, og þeir eru
lausir frá og með l.janúar.
Grímur: Þetta er ekkert sérstakt
með okkur, það sama var að ger-
ast í flestum stéttarfélögum
landsins á þessum tíma, að þau
voru að segja lausum samningum.
Vík.: Hvenær setjið þið frarn
ykkar kjarakröfur?
Grímur: Þær voru mótaðar á
fundi í Sómannafélaginu 26. des.,
annan í jólum já — við verðum
yfirleitt að halda fundi á slíkunt
dögum vegna innkomu skipanna.
Rúnar: Svo er aðalfundur 29.
des., og þá eru kröfurnar ræddar
og samþykktar.
Pétur: Þær eru sendar útvegs-
mönnum sama dag, 29. des.
Vík.: Hvenær fáið þið fyrstu
viðbrögð frá þeint?
Pétur: Þá er þeim jafnframt til-
kynnt að samþykkt hafi verið á
aðalfundinum að ekki skyldi
skráð á skip héðan upp úr ára-
mótum nenta upp á væntanlega
samninga. Það er upphaf málsins.
Útgerðarmenn mótmæltu því og
síðan er haldinn fundur samn-
inganefnda sjómannafélagsins og
útvegsmanna og þar féllust sjó-
menn á að hefja veiðar í trausti
þess að samningar gengju fljótar
fyrir sig en venja hefur verið til og
óskuðu eftir fundi í endaðan
janúar, sem þó ekki varð af vegna
þess að forustumenn sjómanna
voru þá á sjó.
Vík.: Fer Alþýðusamband
Vestfjarða með samningsumboð
fyrir Sjómannafélag Isfirðinga?
Pétur: Nei. Áður en þetta gerð-
ist var ASV búið að óska eftir til-
lögunt sinna félaga um breytingar
á samningnum. Sjómannafélag
ísfirðinga varð fyrst til að koma
með tillögur, síðan koma tillögur
frá Verkalýðs- og sjómannafélagi
Bolungarvíkur og frá þriðja félag-
inu, á Bíldudal, kom fundarsam-
11
Forystumenn sjómanna ráða ráðum sinum á skrifstofu Alþýðusambands Vestfjarða á
ísafirði. F.v.: Pétur Sigurðsson, Grimur Jónsson, Gunnar Þórðarson og Sigurður
Ásgeirsson.
VÍKINGUR