Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Síða 23
Benedikt Alfonsson: Betra fyrirkomulag á stjórnpalli Tölfræðin segir okkur að meira en 50% allra skipsskaða séu árekstrar eða strönd. Um 75% allra árekstra og skipstranda eru talin stafa af mannlegum mistök- um, vanrækt hafi verið að standa nógu dyggilega vörð, stjórnhæfni skipsins ábótavant og ónóg sigl- ingatæki fyrir hendi. Erfitt er að greina hina raun- verulegu ástæðu fyrir óhöppunum og sú spurning vaknar hvort hönnun brúarinnar, biluð tæki eða staðsetning þeirra og umbún- aður hafi gert skipstjórnarmanni erfitt eða jafnvel ómögulegt að taka réttar ákvarðanir og þar af leiðandi hafi hann ekki gert við- eigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir óhappið. Vitanlega verður því ekki neit- að að óhapp stafi af mannlegum mistökum, ef skip strandar meðan skipstjórnarmaður eða leiðsögu- maður er við örbylgjutækið (VHF) á stað í brúnni þar sem ekki er nógu víðsýnt. Á sama hátt er ekki heldur hægt að neita því að vanrækt hefur verið að standa vörð, ef árekstur verður meðan vakthafandi stýrimaður er inni í kortaklefa, önnum kafinn við að setja stað skipsins út í sjókortið. í ofannefndum dæmum hafa viðkomandi orðið á mistök og hann ber því ábyrgð á afleiðing- unum. En spyrja mætti hver sé ástæðan fyrir því að örbylgjutæk- ið er á svona óheppilegum stað og kortaborðið í kortaklefa aftan við brúna þar sem ekki er unnt að sjá umhverfis skipið. Talið er að margir árekstrar og VÍKINGUR strönd eigi sér stað vegna að- stæðna í brú. Miklu skiptir fyrir öryggi skipsins að vakthafandi stýrimaður hafi fulla stjórn á skipinu og yfirsýn yfir aðstæður allar frá einum og sama stað. Enn fremur er augljóst að þekking þess er ákvörðun tekur og hæfíleiki hans til að fást við hinar sérstöku aðstæður hverju sinni getur skipt sköpum um hvort árekstur verður eða ekki. Grunnflötur brúar á olíuskipum ESSO. 1 stjórnpúlt. 2 neyðartækjaborð. 3 handstýri. 4 sigiin^apúlt. 5 radar. 6 stjórnpúlt. 7 Ijósatafla. Eitt stjórntæki, eitt siglingatæki, einn maður. Uppruna stýrishússins má rekja til loka sextándu aldar. Þá hófst notkun stýrissveifarstangar er nefnd var „svipuskaft“ (Whipstaff). Heimildir eru til um bogalagað skýli, kallað gluggi rórmannsins, á hollensku Indía- fari árið 1597. Þetta er fyrsta til- raun, sem vitað er um að gerð hafi verið til að skýla þeim er stóð við stýrið fyrir veðrum og vindi. í skýli þessu var aðeins eitt stjórntæki, stýrið; eitt siglinga- tæki, kompásinn; og einn maður, rórmaðurinn. Sjókort og töflur til notkunar við siglingu skips höfðu í för með sér nauðsyn á afdrepi til að gera útreikninga og staðarákvarðanir. Stærri seglskip fengu þá korta- klefa, sem þótti reyndar hreinn lúksus í þá daga. Kortaklefinn var neðan þilja. Stýrissveifarstöngin var al- mennt í notkun fram á miðja 18. öld, en upp úr því verður stýris- hjólið algengara og talið er, að árið 1769 hafi það alfarið komið í hennar stað. Á seglskipunum þurfti skip- stjórinn og sá er stýrði að vera á upphækkun aftan til á skipinu, svo að þeir gætu fylgst með er seglum var hagrætt. Maðurinn sem stýrði varð að standa til að hafa betra vald á stýrinu. Eftir að gufuaflið kom til sögunnar var stýrishúsið um sinn á sama stað, enda voru fyrstu gufuskipin einnig knúin seglum. Á síðari hluta 19. aldar var það þó flutt á heppilegri stað eða fram fyrir reykháfinn, en það var áfram opið. Áður en vélsíminn kom til sögunnar gaf skipstjóri vélstjóra fyrirmæli í gegnum talpípu. Tal- pípan lá frá stýrishúsinu niður í vél. Frá stýrishúsinu var nú bæði stýri og vél stjórnað. Stýrishúsið var orðið að stjórnpalli (brú). Lokuð brú nauðsyn Eins og fyrr er nefnt var í fyrsta stýrishúsinu aðeins eitt siglinga- tæki, kompásinn. Á öndverðri þessari öld komu fram siglinga- tæki, sem ekki þoldu að vera í op- inni brú. Þessi tæki voru sett í kortaklefann, sem var á næstu hæð fyrir neðan brúna. Þetta 23

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.