Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Blaðsíða 24
fyrirkomulag var óþægilegt og fór
því svo að brúnni var lokað og
kortaklefinn staðsettur aftan við
hana.
En aukinn hraði skipanna og
meiri umferð á höfunum varð
þess valdandi, að stýrimaðurinn á
vaktinni var stöðugt á ferðinni á
milli brúar og kortaklefa, ef hann
ætlaði að sinna skyldustörfum
sínum sómasamlega.
Hin fullkomnu stjórn- og
siglingatæki síðari ára hafa leitt til
fækkunar manna í brú. Sem dæmi
má taka að árið 1960 voru oftast 5
menn í brú á siglingu þ.e. 2 stýri-
menn, 2 hásetar og vikadrengur.
Þegar lagt var að bryggju voru
þeir 8. Á skipum af sömu stærð
voru árið 1970 aðeins 2 menn í brú
á siglingu, stýrimaður og háseti, 3
er lagt var að bryggju.
Reynt að auðvelda störfin í brúnni
Til að öryggi skipa yrði ekki
stórlega skert með þessari fækkun,
fóru sum útgerðarfélög og skipa-
smíðastöðvar að breyta fyrir-
komulagi í brúnni. Ætlunin var að
auðvelda þannig einum manni
störf í brúnni. Út úr þessu komu
margar mismunandi góðar lausn-
ir.
Fyrir skipstjórnarmanninn er
vitanlega heppilegast að hann
megi búast við sömu aðstæðum í
brú hvað varðar búnað tækja og
fyrirkomulag, hvert svo sem skip-
ið er. Þetta hlýtur einnig að vera
æskilegt frá sjónarhóli útgerðar.
Árið 1967 hófust í Englandi að
frumkvæði ESSO olíufélagsins
athuganir á því hvernig bæta
mætti fyrirkomulag tækja í brú á
skipum félagsins. Þær athuganir
urðu til þess að smíðaðar voru
sams konar brýr á þrjú strand-
ferðaskip félagsins. í þessum
þrem brúm var fyrirkomulag
tækja og búnaðar á þennan veg:
— Fremst í brúnni, aðeins
stjórnborðsmegin við miðlínu, er
svokallað siglingapúlt, sem notað
er á siglingu á milli hafna. Þar er
hægt að hafa sjókort og í því eru
siglingatæki. Þegar stýrimaður er
að vinna við sjókortið þarf hann
ekki annað en að líta upp og hefur
þá útsýni yfir hafið.
— Venjulegt stýri er miðskips.
— Neyðarbúnaður ýmiskonar
er í borði fremst í brúnni bak-
borðsmegin.
— Siglingaljós o.fl. aftast.
Tækjum raðað með tilliti til
notkunar
Á áttunda áratugnum hafa allar
helstu siglingaþjóðir heims gert
allýtarlegar rannsóknir á vinnu í
brú og fyrirkomulagi þar. Hér skal
VÍKINGUR
Grunnflötur stjórnpalls. Gin af tillögum Norðmanna.
1 siglingatæki þar á meðal radar. 2 kortaborð. 3 innanskipstalsamband, 4 fjarskiptatæki,
5 sjálfstýring og miðunarkompás. 6 radar. 7 stjórntæki aðalvélar og bógskrúfu. 8 radar. 9
VHF-tæki og borð til skrifta við. 12 handstýri.
A hér er stýrimaðurinn á siglingu. B hér er skipinu stjórnað þegar farið er að eða frá
bryggju. C fyrir hafnsögumann eða skipstjóra, ef hann stjórnar ekki skipinu sjálfur,
fylgist aðeins með. D fyrir þann sem stýrir, þegar handstýrt er.
24