Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Side 28
Corona, þar sem þeir áttu að sitja
við stjórn, heldur stór, þannig að
ekki var hægt að ná til allra
stjórntækja úr stólnum.
Einn maður í brú, meira öryggi
Rannsóknir Þjóðverja beindust
meðal annars að því að athuga
hve miklum tíma menn að störf-
um í brú vörðu í annað en að
horfa út yfir hafið. Eftirfarandi
kom í ljós:
— Stýrimaður einn á verði í
brú, 12 mín/klst fara í önnur störf
en að vera á rýni (horfa út yfir
hafið).
— Tveir menn í brú, annað-
hvort stýrimaður og skipstjóri eða
stýrimaður og háseti, 23 mín/klst
fara í annað en að horfa út yfir
hafið.
— Þrír menn í brú samtímis,
þ.e. stýrimaður, skipstjóri og há-
seti eyða 28 mín/klst í annað en að
líta út yfir hafið.
Allt eru þetta meðaltalstölur.
En þær eru umhugsunarverðar.
Samkvæmt þeim er öryggið mest,
þegar stýrimaðurinn er einn í
brúnni, væntanlega ætti sama að
vera uppi á teningunum, ef skip-
stjórinn er einn í brúnni, þótt ekki
komi það fram í ofangreindum
athugunum. Annaðhvort hefur
skipstjórinn aldrei verið einn eða
þá svo sjaldan að ekki hefur verið
marktækt.
Alþjóðlegur staðall í undirbúningi
Norðmenn hafa nú þegar
smíðað yfir 45 skip, þar sem brúin
er gerð eftir einhverri af þeim til-
lögum, sem nefndar eru hér að
framan. Burðargeta skipanna er
frá 6.000 til 350.000 tonn (Dwt).
Þjóðverjar höfðu árið 1977 smíð-
að meira en 40 skip þar sem
hönnun brúarinnar og fyrir-
komulag tækja og annars búnaðar
var samkvæmt tillögum rann-
sóknaraðila í Þýskalandi. Svíar
hafa einnig smíðað nokkur skip
með sama sjónarmið í huga.
í samræmi við þetta hafa svo
Það verður að standa upp til að ná til stjórntækja bógskrúfunnar.
Myndirnar eru teknar í hrúnni á Svea Corona. Maðurinn er á svokölluðum eins manns
stjórnstað (one man control workplaee).
Með því að teygja sig nær maður í örbylgjutækið.
opinberir aðilar í þessum löndum
gefið út leiðbeiningar um hönnun
og fyrirkomulag í brú. Aðspurður
kvað siglingamálastjóri Hjálmar
Bárðarson, siglingamálastofnun-
ina hafa hug á að gefa út sams
konar leiðbeiningar eða staðal, en
þar sem nú væri unnið að alþjóð-
legum staðli á þessu sviði á vegum
IMCO, mundi þess verða beðið,
að hann kæmi út.
Stöðluð brú af þessu tagi auð-
veldar nýjum mönnum störf í
brúnni og minnkar hættu á
mannlegum mistökum. Þannig
eykst öryggi á sjó.
28
VÍKINGUR