Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Side 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1980, Side 39
burði á hluta álags-keyrslu. Ástæðan er að miklu leyti „púlsa“ hleðsla vélarinnar. „Konstant" hleðsla sömu vélar gæfi ekki jafn- góða útkomu. Hin lélega hluta álags-útkoma tvígengisvélarinnar er stundum lagfærð með hjálpar- blásurum aðallega til að minnka reykmyndunina, en blásarinn tekur einnig til sín orku sem bæta má strax við eldsneytiseyðslu vél- arinnar sjálfrar. Undir engum kringumstæðum má miða elds- neytiseyðsluna við fullt álag allan keyrslutíma vélanna. Milli-hraðgengar aðalvélar skipa þurfa oft tvöfalt fleiri auka- hluti (við keyrslu) en hæggengar vélar. Hinn aukni sveigjanleiki er fæst við notkun margra véla við að knýja skip er hægt að nota til að spara eldsneyti ef vélarnar þurfa ekki að starfa á fullu álagi allan tímann. Mynd 5 sýnir tilfelli þar sem fjórgengisvélar eru keyrðar á „konstant" (jöfnum) snúnings- hraða, sem er eðlilegt ef ásrafalar eru notaðir vegna bógskrúfu eða annars slíks. Marg-véla aðalvéla- kerfi býður einnig upp á aðra kosti. Hægt er að færa hluta allrar viðhaldsvinnunnar út á sjó og stopptími viðhaldsins vegna minnkar þarafleiðandi. Viðhaldskostnaður eykst með fjölgun strokka. Venjulega getur © ÁSAFLSÞÖRF ÞEGAR SKRÚFUSKURÐUR ER 100% Dæmi um ásaflstap við drátt þegar keyrt er með konstant skrúfuhraða. VÍKINGUR AFLTAP VIÐ KEYRSLU Á KON- STANTSNÚN- INGSHRAÐA % 2S - 20 - 15 - 10 - 5 -I vélarframleiðandinn sagt fyrir um varahlutaþörf og þann tíma er viðhaldið tekur og hve lengi vélin er stopp vegna viðhalds. Sumar vélar eru hannaðar til auðveldra viðgerða, sem einnig má skoða sem minni kostnað. Heildar við- gerða- og viðhaldstími er venju- lega styttri á minni vélum. Miðað við notkun og siglingaleið getur verið möguleiki að framkvæma allan aðalhluta viðhalds í frekar stuttum stoppum, og þó sérstak- lega ef notað er ákveðið kerfi við að skipta út gömlum notuðum hlutum og settir í nýir. Hinn raunverulegi viðhalds- kostnaður er samspil margra þátta eins og vélarhönnunar, vélar- stærðar, siglingaleiðar skipsins, hvernig staðið er að viðhaldinu og hvernig viðhaldssamningar við 3ja aðila eru. Öruggasti vegur viðhalds, kostnaðarins vegna, er að skipuleggja það strax í upphafi, þ.e. við smíði skipsins. © „Konstant“ snúningshraði/lögmál skrúfunnar Skiptiskrúfa gefur eðlilega besta nýtni ef hún er keyrð miðað við lögmál skrúfunnar eða sem næst þeim. (Skipsskrúfa ákveð- innar stærðar og lögunar breytir nýtni sinni eftir snúningshrað- anum og skurðinum, þannig að hún við fullan snúningshraða þarf ekki að vera með bestu nýtni við fullan skurð heldur við 7/8 skurð svo tekið sé gróft dæmi. Inn í þetta spila einnig veður, straumar og sjólag). Á mynd 6 sjást greinilega ókostir keyrslu á „konstant" snúningshraða. Strax við 50% álag frá aðalvél hafa tapast 6% afls, sem næstum beint er hægt að færa yfir á 6% meiri eldsneytiseyðslu. Á mynd 7 sést það sama við drátt. Á 80% álagi eða fullum drætti hefði verið hægt að spara 20% olíu- eyðslunnar með því að fara eftir lögmálum skrúfunnar. Besta púnkt skrúfuskurðarins á „kon- 39 7 I | I T S0 100 % AFL ÞEGAR KEYRT ER EFTIR LÖGMÁLUM SKRÚFUNNAR Áhrif slæmrar skrúfunýtni þegar keyrt er með skiptiskrúfu á konstant snúnings- hraða.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.