Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1981, Blaðsíða 50
7. Ráðleggingar varðandi
viðgerðir.
Þurrkið og hreinsið þann hluta
bátsins, sem líma á. Klippið hæfi-
lega stóra bót með ávölum horn-
um. Bótin skal vera 2 cm. stærri en
gatið, sem gera á við. Rífið bótina
og lekastaðinn með sandpappír,
berið lím á báða fleti og látið
þoma í 3—4 mínútur. Aftur skal
iím borið á báða fleti og látið
þorna vel. Að lokum, þrýstið bót-
inni á lekastaðinn og sléttið úr
henni með fingrunum. Eftir u.þ.b.
60 mínútur, dælið lofti í bátinn
fyrir það loft, sem lekið hefur út.
8. Dvölin í bátnuin.
Felið æðsta foringja eða ykkar
reyndasta manni stjóm bátsins.
Hann deilir vatni og vistum og
gefur fyrirmæli. Vistum er ekki
úthlutað fyrstu 24 klst. Með þessu
móti hefur þörf líkamans til neyzlu
verið sett niður. Kynnið ykkur
gúmbjörgunarbátinn að innan, t.d.
hvemig hinir ýmsu hlutar og tæki
vinna. Klæðið ykkur í álpokana,
sem fylgja bátnum. Sitjið eða
liggið þétt saman til að halda á
ykkur hita. Ef þið eruð blaut, farið
þá úr fötunum, vindið þau og
klæðist aftur. Rök klæði eru betri
en engin klæði. Haldið stöðugan
vörð í dyragættinni til að huga að
skipum eða flugvélum. Notið flug-
eldana aðeins, ef einhver von er
um björgun. Lesið leiðbeiningam-
ar á flugeldunum og handblys-
unum vandlega fyrir notkun.
Haldið flugeldunum og handblys-
unum vel út frá bátnum til þess að
forða bæði bát og mönnum frá
tjóni.
Sparið rafhlöðumar eins og
mögulegt er. Ef sól er á lofti, notið
spegilinn til merkjagjafa. Notið
austurtrogið og svampinn til að
ausa og þurrka upp vatn í botni
bátsins. Fleygið engum hlut út úr
bátnum eins og t.d. umbúðum.
Slíka hluti má nota til einangrunar
í botn bátsins. Regnvatni má safna
i plastbrúsa frá safntregt á þaki
bátsins. Fyrsta vatninu, sem tapp-
að er frá þaktregtinni skal fleygt,
þar sem það er trúlega saltmengað.
VIÐVÖRIJN: Drekkið aldrei sjó,
þar sem það eykur mönnum
þorsta.
9. Haldið bátnum alltaf fullpump-
uðum.
Eftir langa dvöl í bátnum kann
að reynast nauðsynlegt að loftfylla
bátinn á nýjan leik. Munið eftir að
setja tappana í ventlana.
10. Báturinn kjölréttur.
Ef báturinn er fullmannaður,
hvolfir honum trúlega ekki. Ef
bátnum hins vegar hvolfir, t.d. við
útsetningu, má auðveldlega koma
honum á réttan kjöl aftur. Sá hluti
bátsins, sem koltvísýringsflaska er
fest á liggur dýpst í sjónum.
Standið með báða fætur á koltví-
sýringsflöskunni, grípið báðum
höndum um línuna, sem liggur
þvert undir botn bátsins, homrétt á
koltvísýringsflöskuna.
Stjómið bátnum þannig, að sá
hluti hans, sem andspænis flösk-
unni er, snúi upp í vindinn. Með
snöggu bakfalli, þar sem líkams-
þunganum er beint frá bátnum, er
báturinn réttur við. I hvössum
vindi er vissara fyrir þann, sem
þetta gerir, að hafa líflínu bundna
um mittið, þar sem báturinn gæti
fokið frá honum að öðrum kosti.
Ósyndur maður ætti ekki að sleppa
línunni, sem liggur þvert undir
bátinn, heldur láta bátinn velta yfir
sig og handlása sig síðan eftir lín-
unni upp í bátinn.
11. Hvað gera skal
ef sjálfvirkur uppblástur
bátsins bilar.
Ef sjálfvirkur uppblástur bátsins
er ekki í lagi fyrir einhverja slysni,
þá stökkvið í sjóinn, syndið að
bátnum, rífið límbandið eða svarta
gúmmístrimilinn í burtu, sem lokar
töskunni eða hylkinu og togið í
flöskuvírinn, sem gerir koltvísýr-
ingsflöskuna virka. Ef þetta dugar
ekki, blásið bátinn þá upp með
handpumpunni úr gúmbjörgunar-
bátnum.
12. Leiðbeiningar varðandi
hitabeltisloftslag.
í sterku sólskini: Hleypið loft-
inu úr botninum, svo sjórinn kæli
bátinn. Dyrunum skal haldið opn-
um. Tjaldþekjunni skal haldið
rakri, svo og klæðum fólks. Hellið
svolitlu vatni í botn bátsins.
Vemdið háls og andlit fyrir sól-
bmna.
Að nóttu til: Dælið botninn upp,
haldið honum þurrum og hafið
innganginn lokaðan.
13. Björgun frá þyrlu.
Ef þyrla getur ekki tekið slasað
fólk eða veikt frá skipinu sjálfu, þá
látið gúmmílífbátinn fyrír borð.
Leyfið honum að þenjast út og
dragið hann síðan að skipshlið-
inni. Hleypið lofti úr bogunum,
sem halda tjaldþekjunni uppi,
þannig að hún leggist niður í bát-
inn. Varpið út rekakkerí. Komið
hinum slasaða um borð í gúm-
björgunarbátinn ásamt hjálpar-
mönnum. Beinið skipinu upp í
vindinn og keyrið hæga ferð áfram.
Ef vindur er hvass, keyrið þá svo
hæga ferð að skip og bátur rétt
mjakast áfram. Fjarlægð á milli
skips og gúmbjörgunarbáts þarf að
vera 30—50 metrar. Notið hæfi-
lega sveran kaðal fyrír fangalínu.
Undir öllum kringumstæðum,
þar sem þyrla er notuð til björg-
unar frá gúmbjörgunarbát, verður
þekjan að liggja niðrí og sjúkling-
urínn eða sá slasaði þar ofan á, að
öðrum kosti virkar þekjan eins og
segl fyrir hvirfilvindi þyrluspað-
anna.
14. Lokaorð.
öll áreynsla eyðir orku. Hún
eykur mönnum svita og um leið
þorsta. Slæm loftræsting í bátnum
veldur þreytu og svefni. Umfram
allt, örvæntið ekki.
50
VÍKINGUR