Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Blaðsíða 15
skipafélagið hefur um árabil gert
út stórar bílferjur til Færeyja á
sumrum. Ferju, sem tekur um 250
bíla og á annað þúsund farþega.
Þessi skip bafa siglt milli Þórs-
hafnar og Esbjerg.
Norðurlandaráð gerði ítarlega
könnun, er sýndi að hagkvæmt
var að reka farþega- og bílferju
milli íslands og hinna
NORÐURLANDANNA, MEÐ
VIÐKOMU í Skotlandi. Ekki
bólar þó á þessari samnorrænu
ferju enn þá, en þessar spár sýna
þó, að hér getur verið um ábata-
samt fyrirtæki að ræða. Og það
ýtir ekki einvörðungu undir
eyðslu á gjaldeyri. Mikill hluti
farþeganna verður erlendur og ís-
lenskt vinnuafl og fjármagn skap-
ar því gjaldeyri.
Án efa eru það vetrarsigling-
amar, sem gjöra það að verkum,
að skip er leigt, en ekki keypt, til
að byrja með, þótt eigi viti ég
sönnur á því.
Hvaða gagn er að
bflferju og vegasambandi
yfir hafið?
Það er margt sem vinnst fyrir
hinn almenna borgara, þegar
vegasamband er komið á milli ís-
lands og meginlands Evrópu. í
öðrum Evrópulöndum geta þeir,
sem það vilja ekið að vild sinni
milli landa á sínum eigin bílum.
Far með feijunni kostar að vísu
svipað og ódýrasta gerð af sérfar-
gjöldum flugvéla, en ef fjórir eru
um bíl, þá er frítt fyrir bílinn.
Þá geta menn sett farangur sinn,
eða hluta hans í bifreiðina, enn-
fremur viðlegubúnað, og enn aðr-
ir leigja sér hjólhýsi. Um alla
Evrópu eru þúsundir tjaldsvæða,
sem eru vöktuð og þar er að finna
alla þjónustu, er ferðamaðurinn
þarf, en verðið er aðeins brot af
því, sem hótelgisting kostar. Full-
komið vegakerfi Evrópu bíður
síðan íslensku bílanna og menn
geta farið um allt England, eða
VELKOMMEN OMBORD.
Vi har sejlet med passagerer siden 1866.
Man sover godt ombordj
Sopriserne er ca. det halve aflandpriser.
Velkommen ombord.
Stórar bílferjur veita mörgum mönnum vinnu. Það skulum við hafa í huga.
allt til Miðjarðarhafsins, það er
tveggja daga akstur, eða þriggja,
eftir því hvað menn leggja á sig.
Nú um borð í svona skipum er
allt sem nafni tjáir að nefna og
greiða má fyrir þjónustu um borð í
íslenskum peningum og þjón-
ustuliðið er íslenskt. I skipinu er
veitingamiðstöð eins og á öðrum
slíkum skipum, banki, leikskóli
fyrir börn, (bamaheimili) veit-
ingabúð, spilavíti og barir, sund-
laug, kvikmyndahús, dansstaður
og diskótek. Leiksvæði er fyrir
böm og skipslæknir er á skipinu.
Á þetta er minnst, til að sýna
fram á að þama eru mörg at-
vinnutækifæri, eða margar vinnur
fyrir sjómenn og enginn smáræðis
rekstur er þama á ferðinni. Það er
Íiví mikið sem við eigum undir,
slendingar, ef við verðum ekki of
VÍKINGUR
15