Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Blaðsíða 37
Fram til þessa hefur einkum verið rætt um að koma þessu efni á framfæri með eftirtöldum hætti: Um borð í íslenskum skipum, myndefni á myndböndum (videó-spólum), en notkun myndbandatækja fer nú mjög vaxandi í íslenskum skipum. 2. í beinum tengslum og til stuðning við almenna kennslu í Sjómannaskólanum, Stýri- mannaskólanum, Vélskólan- um og öðrum tengdum skól- um. 3. Á sérstökum endurmenntun- arnámskeiðum fyrir starfandi sjómenn við Sjómannaskólana. 4. í samkomusölum út um land, á fundum starfsmanna Slysa- varnafélags íslands og Sigl- ingamálastonfunar ríkisins, með sjómönnum, björgunar- sveitum og slysavarnafólki, en slíkir fundir eru nú haldnir til þess m.a. að leiðbeina og kynna notkun björgunar- og öryggistækja. Eins og fyrr er nefnt hefur nefndin leitað eftir fjárstuðningi við stonfun myndbankans hjá fjölmörgum aðilum og fengið yf- irleitt mjög góðar undirtektir. Þeir aðilar, samtök og stofnanir er veitt hafa fé til stofnunar myndbank- ans eru: Fiskimálasjóður íslands, Far- manna- og fiskimannasamband íslands, íslensku tryggingarfélög- in. Þá var samþykkt að veita nokkurt fé til myndbankans á fjárlögum fyrir árið 1983. Þetta ætti að tryggja að á næsta ári verði hægt að auka verulega framboð á myndefni frá myndbankanum. Þessa dagana er unnið að loka- fragangi á íslenskum texta fyrir það myndefni sem keypt hefur verið. Allt myndefni á mynd- böndum mun verða með íslensku tali. Nú er búist við, að hægt verði að hefja útlán eigi síðar en í lok þessa mánaðar (janúar 1983). Þegar útlán hefjast verður boðið upp á a.m.k. 11 myndir á mynd- böndum. Hver titill er fjölfaldaður á 10 spólur. Myndefnið verður hægt að fá til sýningar á VHS eða Beta- kerfi. í þessu fréttabréfi er listi yfir þær myndir sem á boðstólum verða þegar bankinn hefur starf- semi. Varðandi útlán á myndefni þá er það stefna þeirra aðila er að stofnun myndbankans standa að gjaldtaka fyrir útlán standi ein- ungis undir kostnaði við viðhald og eðlilega endumýjun mynd- banda. Það fjármagn sem mynd- bankinn fái með beinum fjár- framlögum frá hagsmunaaðilum verði notað til kaupa á nýju myndaefni. Það er von þeirra aðila sem staðið hafa að undirbúningi stofnunar myndbankans að þessi tilraun til þess að efla öryggi ís- lenskra sjómanna eigi eftir að skila árangri þegar tímar líða. Til þess að svo megi verða er nauð- synlegt að sem nánast samband og samvinna takist milli sjómanna og eigenda skipa annars vegar og myndbankans hins vegar. Slíkt samband og samstarf ætti að tryggja sem best að það sem gert yrði af hálfu myndbankans væri íslenskum sjómönnum til goð, þá væri tilgangnum náð. Allar frekari upplýsingar um stofnun myndbankans munu undirritaðir fúslega veita. Sk rá yfir mynde 1. janúar 1983 fni Myndefni kerfi. á myndböndum til sýningar fyrir VHS- og BETA- Mynd nr. Heiti Lengd ol Kennslukvikmynd un notkun gúmmíbjörgunarbáta.. 16 mín. 02 Neyðarmerki. 25 — 03 Að slökkva eld. 15 — 04 Undirstöðuatriði slökkvistarfa. 25 — 05 Stjóm og skipulag slökkvistarfa — Fyrri hluti. 26 — 06 Stjórnun og skipulag slökkvistarfa — Seinni hluti. 21 — 07 Björgun með þyrlu úr sjávarháska. 29 — 08 Flutningur á hættulegum varningi með skipum 20 — 09 Eldvarnir. 19 — 10 Neyðarhjálp. 8 — 11 Stöðvun útvortis blæðinga. 8 — VIKINGUR 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.