Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Síða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Síða 26
en eins og allir vita eru mánu- dagskvöid ekki þau skemmtileg- ustu á skemmtistöðum borgar- innar. Vinnutíma Norðmannanna er þannig háttað að flestir eru tvo mánuði um borð og einn mánuð heima í Noregi. íslendingarnir eru hins vegar þrjár vikur á sjó í einu og síðan eina viku í landi. 4Vi tíma sigling frá Þingeyri til Flateyrar Um klukkan hálf tíu að kvöldi var komið til Þingeyrar. Skipaút- gerðin fær alls staðar afgreiðslu á hvaða tíma sólarhrings sem er Meðan unnið er í höfnum getur Nils kokkur sest niður og slappað af. Hann segist langa til að sigla um suðlægari slóðir og ætlar að reyna að fá pláss á öðru skipi fljótlega. Þama sést losunarkraninn sem hífir gáma allt að fimm tonnum. Stóra bóman fyrir aftan hann hífir hins vegar hluti sem vega fimm til tuttugu og átta tonn. 26 nema í Reykjavík og á Akureyri. Víða þarf ekki nema tvo menn til að taka á móti skipunum, vanan lyftaramann og annan til að taka á móti stóru gámunum af dekkinu. Á Þingeyri var vani lyftaramað- urinn í fríi og tafði það nokkuð losunina. Einnig var snjókoma og slæmt skyggni til trafala. Nærri lá við að frystigámurinn sem hífður er ofan af dekki með krananum, lenti ofan á lyftaranum því stjórnandi hans ók undir gáminn án þess að taka eftir honum. Þeir á Þingeyri fengu mörg bretti af biki og þakpappa því verið er að stækka hjá þeim frystihúsið, kassaumbúðir fyrir útflutnings- vöru sína og matvörur. Síðan voru lestuð 23 bretti af gærum til Akureyrar. Var það rúmur helm- ingur af ullarframleiðslu þeirra Dýrfirðinga á þessu hausti. Um klukkan ellefu var lestun lokið og síðan var siglt út í myrkrið í átt til Flateyrar. Þó að Flateyri sé í næsta firði, tók siglingin þangað fjóra og hálfan tíma. Vindurinn var kom- inn upp í tólf stig en eins og Guð- mundur á Patró sagði, veitir Vela mörgum ró þó sjórinn fossi um brjóstin hennar. Hávaðinn frá akkerunum venst líka svo líklega hefur Sigurd, 2. stýrimaður verið VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.