Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Page 31
T vílembingstroll notað við
veiðar á kohnunna og gulllax
Rannsóknir sem gerðar hafa verið hin síðari ár hafa Ieitt til þess
að áhugi manna á því að nýta þessar tegundir það er kolmunna og
gulllax til manneldis. Gulllax er nú þegar töluvert notaður í fisk-
hakk. Kolmunni hefur hins vegar afarlítið verið notaður til mann-
eldis, a.m.k. í Noregi. En Færeyingar, íslendingar og
Austur-Evrópuþjóðir hafa þó gert nokkrar tilraunir til þess að nota
kolmunna til manneldis. Stærsta vandamálið hér í Noregi er
skortur á jöfnu framboði af fyrsta flokks hráefni.
Kolmunni sem veiðist á got-
svæðum á vorin er of magur til
þess að hægt sé að nota hann til
manneldis. Frá júní byrjun og út
árið er hins vegar kolmunni í
Norðursjó fyrsta flokks vara.
Hann ætti því að vera hægt að
nota til manneldis. Einn stærsti
kosturinn við veiðar í Norðursjó
er hinn stutti siglingatími milli
miða og lands. í Norðursjó er
hann 3—6 tímar. Það þýðir að
koma má með svo til nýjan fisk til
löndunar tvisvar í viku. Á áður-
nefndum tíma er að fá í Norðursjó
bæði stóran kolmunna og gulllax.
Fram til þessa hefur verið erfitt að
veiða þessar tegundir í hefðbund-
in veiðarfæri. Ef frá eru taldir sól-
skinsdagar, þá stendur fiskurinn
þetta 5—40 m fyrir ofan botn.
Hann er þá utan þeirra
marka sem botnvarpa nær til.
Botnvarpa með stóru opi eða flot-
varpa sem er dregin nálægt botni
virðast því vera hentugustu veið-
arfærin við slíkar veiðar. En vegna
þess að botninn á umræddu
svæði, það er Norðursjó, er mest-
megnis mjúkur sandbotn er nær
ógerningur að veiða þar með
stórum hlerum.
Tvílembingstroll leysir þetta
vandamál og er því nánast einasti
möguleikinn. Togkraftur skip-
Kolmunna og Gulllax má nota til manneldis.
VÍKINGUR
31