Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Side 35
inu af Guðmundi og starfaði vel,
þar til á síðasta kjörtímabili að
hann veiktist. í veikindaforföllum
Bjöms annaðist Víðir Sigurðsson
að mestu störf formanns,“ sagði
Ragnar.
Landsbyggðarmenn nú
með 2 menn í stjóm
Ragnar sagði að stjómarkosn-
ingamar nú væru að því leyti
tímamarkandi, að landsbyggðar-
menn hefðu nú fengið 2 menn í
aðalstjórn og fyrstu 2 varamenn í
stjóm. Áður höfðu landsbyggðar-
menn aðeins 1 mann í varastjórn.
„Það er óhætt að segja að mikl-
ar breytingar hafi orðið á stjóm-
inni að þessu sinni, þar sem
helmingur stjómarmanna eru nýir
í stjórn. Þorvaldur Árnason fyrr-
verandi skipstjóri, sem starfað
hefur vel og lengi að málefnum
félagsins var kjörinn varaformað-
ur.
Þegar Ragnar var spurður hvað
það væri helst, sem hann hyggðist
breyta í starfsháttum Öldunnar,
fyrir utan það að efla félagsstarfið
úti á landi sagði hann: „Lög
félagsins eru orðin æði gömul og
höfum við hugsað okkur að
endurskoða þau. Þá höfum við
áhuga á að endurskoða reglugerð
sjúkrasjóðs félagsins, þannig að
hann þjóni tilgangi sínum betur
en nú er. Á vissan hátt má segja að
sjúkrasjóðurinn sé ekki í tengslum
við það sem honum er ætlað.
Hann kemur helst við sögu ef
menn hafa slasast mikið eða hafa
verið lengi frá störfum vegna
veikinda. Ég tel að Farmanna- og
fiskimannasambandið eigi að
hafa forgöngu um að sameina
sjúkrasjóði aðildarfélaganna, að
minnsta kosti að hluta. Þetta á
ekki eingöngu við um sjóði yfir-
manna heldur allt eins um sjóði
undirmanna. Að mínu mati eiga
sjómenn að vera í einum sjúkra-
sjóði.“
35
stjómarinnar þegar hann hóf nám
í listmálun á erlendri grund en
honum var synjað um styrkinn en
Öldumenn höfðu af þessu spumir
og veittu honum styrk til náms.
„Fram að þeim tíma hafði Kjarval
stundað sjómennsku," segir
Ragnar.
„Með árunum hefur Aldan
þróast í að verða fyrst og fremst
stéttarfélag.
Upp úr 1930 var félagið í mikilli
lægð og gengu félagar úr því og
komu síðan aftur samanber þegar
Skipstjórafélag Reykjavíkur gekk
inn í Ölduna. Guðmundur Odds-
son varð formaður 1958 og hóf
mikið starf. Ekki má heldur
gleyma þætti Lofts Júlíussonar
skipstjóra, sem um tíma var hvoru
tveggja, formaður og starfsmaður.
Hann ferðaðist mikið um landið
og hafði náið samstarf við félags-
menn. Víða um land eins og til
dæmis á Snæfellsnesi minnast
menn hans. Er Loftur hvarf frá
datt starfið niður að nokkru og var
í nokkurri lægð þar til er Þórður
Sveinbjömsson er ráðinn fram-
kvæmdastjóri. Um leið tekur
Guðmundur Ibsen við for-
mennsku og rífur starfið upp
ásamt Þórði. Bjöm Þorfinnsson
tók síðan við formennsku í félag-
Á formannaráðstefnu FFSÍ, sem haldin var á haustmánuðum færði Ingólfur Stefánsson
framkvæmdastjóri sambandinu að gjöf fundarhamar. Hamarinn er úr búrhvalstönn,
skorinn út af Sigbirni Amarsyni, skipstjóra. Hér heldur Ingólf á hamrinum góða.
VÍKINGUR