Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Síða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1983, Síða 52
meðalneysla á fiski minnkað úr40 kg/einstaklingur niður í 30 kg/- einstaklingur pr. ár. Sem betur fer virðist fiskneysla nú á hægri upp- leið. Það er stefna stjórnvalda að meðalneysla á fiski pr. einstakling á ársgrundvelli skuli vera árið 1990, 40 kg. Við eigum að borða meiri fisk vegna þess að hann inniheldur prótín, vítamín og málmsölt. Auk þess gefur hann litla orku. Feitur fiskur er mikil- vægur vítamín D brunnur. Auk þess er sjávarolía fjölómettuð sem er mjög jákvætt. Og þar sem Nor- egur er fiskiþjóð eigum við að borða meira af eigin framleiðslu. Árið 1979 borðuðum við álíka mikið af fiski eins og Svíar. Svíar hafa reyndar aukið fiskneyslu sína jafnt og þétt síðan 1960. Ekki borða allir jafn mikið af fiski og það skiptir máli hvar við búum þegar talað eru fiskneyslu. Fólk við ströndina borðar meiri fisk en fólk til sveita. Þeir sem búa í þétt- býli borða líka meiri fisk en þeir sem búa í strjálbýli. Athuganir meðal neytenda sýna að einstakl- ingar og hjón án barns borða meiri fisk en barnafjölskyldur. Það sýnir sig einnig að fiskneysla minnkar í barnafjölskyldum eftir því sem börnin verða fleiri. Eldra fólk borðar meiri fisk en yngra. Það sýnir að við verðum að vinna að því að fá yngra fólkið til að borða meiri fisk. Mest af fisknum sem við borðum í dag er notað í heita máltíð en fiskur er líka ágætt álegg. Hvers vegna borðum við minna af fiski? Ástæðurnar eru sjálfsagt fjölmargar t.d. skipta verð, mark- aðir o.fl. máli. Árin 1975-80 hækkaði fiskverð minna en verð flesta annarra matvara. Þrátt fyrir þetta jókst neyslan ekki. A siðustu 15 árum hafa 75% af fiskbúðunum lagt upp laupana. Fyrir marga er í dag mun erfiðara að fá nýjan fisk en nýtt kjöt sérstaklega í dreifbýli. í matvöruverslunum er líka minna gert fyrir fisk en kjöt svo sem tilboðsverð, kynningar og matreiðslumöguleikar. Einnig má minna á niðurstöðu athugana meðal húsmæðra, en flestar þeirra telja fisk heilsusamlegri en kjöt. Samt sem áður kaupa þær frekar kjöt en fisk. Þær töldu að heimil- isfólkið kynni frekar að meta kjöt en fisk. Áuk þess töldu þær að auðveldara væri að matbúa fisk en kjöt. Þetta ættu markaðsráðgjafar að taka til athugunar. Hvað er til ráða? Næringarráð Ríkisins (NR) telur það vera eitt af sínum mikilvægustu verkefnum í framtíðinni að auka fiskneyslu meðal landsmanna. Árið 1980 efndi NR til ráðstefnu um þetta mál. Voru þátttakendur sammála um að við verðum að auð- velda fisksölufyrirkomulagið þannig að fólk ætti auðveldara með að nálgast fisk. Við verðum að gæta þess að halda í við gamla siði við matartilbúninginn. Við verðum að fá fólk til að hafa já- kvætt viðhorf til fisks. Við verðum að koma fisknum inn á nýja markaði svo sem fiskihamborgur- um. Við verðum að fjölga þeim dögum þegra fiskur er í soðið og við verðum að auka fiskiálegg. Þó að við myndum bæta við aðeins einni brauðsneið á dag með fiski- áleggi gæti það þýtt á ársgrund- velli aukning í fisknotkun sem samsvarar allt að 5 kg á ári pr. einstakling. Og það er hvorki meira né minna en helmingur æskilegrar aukningar í fiskneyslu. Þar með luku sérfræðingar máli sínu og sjónvarpskokkurinn Ingrid E. Hoving hélt stutta tölu um hvernig matbúa má fisk og gerði grein fyrir þeim réttum sem blaðamönnum var boðið upp á þar á eftir. Þar voru á boðstólnum hinir ýmsu réttir gerðir úr loðnu, laxi, ál, silung, makríl, síld og fleiri tegundum. Bragðaðist það af- bragðs vel, sér í lagi kryddloðna og ver herlegheitunum skolað niður með úrvals hvítvíni. F.S. Sumarvaka í grös ég geng sem grænust loga, og fæ minn feng í fiðluboga. Ég leik mín ljóð, ó lífsins kraftur: mín gamla glóð — hún geislar aftur. Mín fiðla fær að fagna lengi, og grasið grær í geislastrengi. 52 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.