Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Blaðsíða 8
Texti: Haukur Már Haraldsson. Teikningar: Haraldur Einarsson. 8 VÍKINGUR Vinnuála-fíkniefni-vinnuslys Viöbrögö viö umfjöllun um þátt sjómanna ísmygli og neyslu fíkniefna í síðasta tölublaöi Víkingsins hafa veriö geysimikil og skiptir þar i tvö horn um mat manna. Upp hafa risiö menn, sem taka stórt uppísig, og hrópa hátt um róg og níö um sjó- mannastéttina, en miklu fleiri hafa tekiö efninu jákvætt og viöurkenna aö þar er fjallaö um þjóöarböl, sem hvorki sjómenn né nokkrir aörir íslendingar geta leng- ur leitt hjá sér aö takast á viö. Vandinn er áþreifanlegur og öll þjóöin ber ábyrgö á honum, sjómenn ekki undanskildir. Þaö hefur löngum veriö talinn manndómur aö horfast í augu viö óvin sinn og takast á viö hann. Sjómenn veröa ekki sakaöir um manndómsleysi á síöum þessa blaös og þaö er von ritstjórnar aö þeir muni taka forustuibaráttunni viö þá eyöandiplágu sem fíkniefnaneyslaþjóðarinnar er oröin. Hér á eftir er fjallaö um þá fullyröingu viömælenda okkar í síöasta blaöi aö samband sé á milli vinnuálags, fíkniefna og vinnuslysa. Sú staöreynd blasir viö aö vinnuslysum um borö í skipum fjölgar ár frá ári, þrátt fyrir stööugar framfarir í öryggisgæslu, aukna fræöslu og aö flotinn minnkar frekar en stækkar á allra síö- ustu árum. Hvaö veldur? Er nokkur goögá aö hrinda af staö umræöu um hvort miklar vökur viö störfog vágesturinn „ fíkniefni“ geti átt þar hlut aö máli, eins og annar viðmælenda blaösins heldur fram? Undirritaöur leggur þessa umfjöllun fram sem innlegg í baráttuna fyrir öryggi sjómanna. Sigurjón Valdimarsson, ritstjóri. Greinaflokkur Víkings um sjómenn og fikniefni hefur vissulega hlotiö talsveröa athygli og nokkuð verið um hann fjallað i dagblöðum. Eitt er það atriði sem skrifara finnst athyglisverðast þeirra sem þar komu fram. Það er sú fullyrðing „Eiriks“ i sið- asta blaði að þrældómur sé slíkur um borð i litlu togurun- um að menn taki inn örvandi lyf til að halda sér gangandi. Þannig veröi menn vanhæfari til að átta sig á hættum og mörg vinnuslys á sjó eigi ræt- ur að rekja til þessa. Ef rétt er, hlýtur hér að vera um stórmál að ræða. Þess vegna sneri Víkingur sér til nokkurra einstaklinga sem vita mega um þessi mál og spurði þá hvað reynsla þeirra segði þeim um ástand mála. Einnig kom óhjákvæmilega til umræðu umfjöllun blaðsins um þessi mál i síðasta tölu- blaði. Þar skipti vægast sagt í tvö horn. Góð umfjöllun — slæm umfjöllun Þannig sagðist Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri og forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, að það væri ýmislegt í þessum greinum, sem honum fyndist varla geta staðist, en i heild- ina væri það af hinu góða að fá umfjöllun um svona mál og vekja athygli á því að þarna gæti verið um vandamál að ræða. „Varöandi fíkniefni", sagði Guðjón, „þá þekki ég ekki til slikra tilfella. En eftir að þessar greinar birtust í Viking hafa ýmsir einstak- lingar komið að máli við mig um þessi mál og sam- kvæmt þvi sem þeir segja viröist vera einhver fótur fyrir þvi að fíkniefnaneysla sé stunduð i ríkara mæli en ég hafði gert ráð fyrir. Enda hef ég aldrei stundaö siglingar, en mér skilst að þessa vanda gæti mest á skipum sem sigla utan með afla.“ Ólafur Örn Jónsson, skipstjóri á Viðey RE, taldi aftur á móti að þessi umfjöll- un Vikings um sjómenn og fikniefni hefði verið slæm og til þess fallin að koma óorði á sjómenn sem stétt. „Þarna vantar algerlega viðtöl við einhverja þá sjó- menn sem ekki hafa staðið í svona fíkniefnastússi. Eins og þetta birtist í blaðinu er máliö ákaflega einhliða sett fram. Ég er til dæmis sann- færður um að fikniefnaneysla er ekki nándar nærri eins al- geng og sagt er í blaðinu. Þetta gæti verið vandamál á einu og einu skipi, jafnvel svæðisbundið vandamál. En skipstjórar sjá þessa karla út og ráða þá emfaldlega ekki. Og allir þeir skipstjórar sem ég þekki láta svona menn fara umsvifalaust, ef upp um þá kemst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.