Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1986, Síða 54
Skoðun mín
Hcroönú
Guðbjartur
Gunnarsson
stýrimaður
Lifum við
betur af
leik að
knetti en
starfi
á sjó?
54 VÍKINGUR
Ekki fer hjá því að þessi spurning leiti á hugann, þegar lagt er fram
frumvarp á Alþingi um aukafjárveitingu til þoltaleiksmanna eftir sigur-
sælan leik þeirra í Sviss á dögunum. Öll öryggis- og löggæsla á hafinu
við landið er í molum, sjókort af hafinu kringum landið að mestu leyti frá
því um aldamót og fræðsla sjómanna — þæði undir- og yfirmanna — í
algjöru lágmarki; allt vegna fjárskorts. Höfum við efni á, við þessar að-
stæður, að henda fimm milljónum króna í handbolta? Óhjákvæmilegt er
að álíta að þeir góðu þingmenn, sem slíkt leggja til, hafi einkennilegt
verðmæta- og gildismat.
Gæslan keypti nýja þyrlu af
minni gerð og lét upp í kaupin
aðra, sem er eldri og ekki
eins hagkvæm lengur. Ekki er
nema gott um það að segja.
En það vantaði talsverða
upphæð til að endar næðu
saman. Til að brúa það bil er
brugðið á það ráð að leigja
Fokkervélina til áætlunar-
flugs!
Þetta er gert þrátt fyrir há-
vær mótmæli FFSÍ, Sjó-
mannasambands Islands,
Slysavarnarfélags íslands og
fjölda þingmanna. Þessi að-
ferð til að afla fjár til kaupa á
litilli þyrlu, sem litið geturfar-
ið yfir sjó, er flestum þeim
sem stunda sjó eða hafa af-
skipti af öryggis- og velferðar-
málum sjómanna algerlega
óskiljanleg og hljóta raunar
aö vera áhöld um það hvort
þetta sé i raun og veru lög-
legt. Reyndartel ég nauðsyn-
legt að fá úr þvi skorið fyrir
dómstólum. Hræddur er ég
um það færi um ýmsa, ef slys
yrði i hafinu og enginn nægi-
lega vel útbúin flugvél tiltæk i
leitar- og björgunarflug. Nei,
þessu flugvéladæmi þyrfti að
snúa algerlega við. í stað
þess að Flugleiðir séu með
Fokkerinn á leigu frá Land-
helgisgæslunni ætti gæslan
að hafa full og óskoruð um-
ráð yfir sinni flugvél og þar aö
auki ætti að vera tiltæk önnur
sambærileg vél hjá Flugleið-
um, sem gæslan gæti fyrir-
varalaust fengið umráð yfir
t.d. þegar þeirra vél væri í
skoðun eða langvarandi leit
stæði yfir. i þessu sambandi
langar mig að varpa þeirri
spurningu fram til viðkomandi
yfirvalda og ég vænti svars;
hvort hægt sé að fá leigðan
lögreglubíl eða sjúkrabil til að
nota á sendibílastöð ...? Það
tekur ekki langan tíma að
setja nauðsynleg tæki i bílinn
ef útkall kæmi og þyrfti að
nota í það sem hann var
keyptur til!
Skipaútgerð
Gæslunnar
Látum þetta duga um
flugmálin, en hugum aðeins
að skipaútgerð og stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar.
Eins og málin standa nú
eru þrjú varðskip i eigu Gæsl-
unnar. Þetta eru allgóö skip á
sína visu en farin dálítið að
eldast og þurfa talsvert við-
hald enda það elsta komið
hátt á þritugsaldurinn, en það
er Óðinn, sem var smíðaður
1959.
Þegar þessi þrjú skip eru
öll í gangi getum við aðeins
reiknað með að tvö þeirra
séu að staðaldri á sjó i einu.
Aöeins litinn hluta ársins get-
um við reiknaö með að öll
skipin þrjú séu á sjó. Þarna
sýnist mér skjótra úrbóta
þörf. Það er nauðsynlegt að
fjölga skipum í gæslunni.
Ég held að það væri ekki of
í lagt að skipin væru fimm svo
hægt væri að staðaldri að
hafa eitt skip við hvern
landsfjórðung að gæslu- og
björungarstörfum sérstak-
lega þegar haft er í huga að
Alþjóðasiglingamálastofnun-
in hefur úthlutað islandi
björgunarsvæði, sem er um
980 þúsund ferkílómetrar.
Hver maður meö reynslu af
björungar og löggæslu á sjó
hlýtur að sjá að til þess að
sinna þeim á viðunandi hátt á
þessu hafsvæði ber brýna
nauðsyn til að stórefla Land-
helgisgæsluna í stað þess að
skerða. Eða eigum við
kannski um alla framtið að
reiða okkur á varnarliðið til
bjargar? Ef svo er, er best að
viðurkenna það opinberlega,
svo alþjóð viti hvar við stönd-
um i þessu efni, en ekki að
vera að pukra með það.
Stjórnstöðin er fámenn og
mannlaus um helgar.
Sjómælingar og
sjókortagerð
En snúum okkur nú að Sjó-
mælingum Íslands og sjó-
kortagerð af hafinu umhverfis
landið og af landgrunninu.
Þar er ástandið þannig að
leiðsögubók fyrir sjómenn
hefur verið ófáanleg í 20 ár.
Þegar reynt er að knýja á um
útgáfu hennar er ýmist sagt
að það vanti pening til útgáf-
unnar eða þá að forstöðu-