Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 7
VÍKINGUR
Kvótinn í 10 ár, hver hefur breytingin orðið milli hinna ýmsu atvinnusvæða?
Suðurfirðir Vestfjarða
hafa nú þriðjung
þess kvóta sem þeir
höfðu 1984
á sama tíma halda Eyfirðingar nær 90 prósentum af því sem þeir
höfðu fyrir 10 árum og aðrir hafa bætt við sig á 10 árum
Þær breytingar sem hafa orðið á
kvótastöðu útgerða, byggðarlaga og
landshluta eru æði miklar á þeirn tíu
árum sem liðin eru frá því kvótakerfið
var lögleitt hér á landi. Við kvóta-
úthlutunina nú kemur fram að kvótinn
er aðeins 63 prósent af því sem var
árið 1984.
I upphafi hvers kvótaárs koma fram
ýmsar staðreyndir um kvótastöðu ein-
stakra aðila og fleira. Hér verður litið
a nokkrar hliðar kvótans. Reynt er að
Setja landsvæði upp í atvinnusvæði,
það er að þrengja landshlutana.
Suðurfirðir Vestfjarða
halda þriðjungi
Vestfirðingar hafa misst mest frá sér
af kvóta. Á Suðurfjörðum er staðan
slæm. í upphafi kvótans voru samtals
10.666 þorskígildistonn á Patreks-
firði, Tálknafirði og á Bíldudal. Fyrir
fimm árum voru þar 5.253 þorsk-
ígildistonn og nú eru eftir 3.572 tonn,
eða rétt um þriðjungur þess sem var í
upphafi kvótans, árið 1984. Reyndar
er staðan á Hvammstanga sérstök því
þar eru aðeins eftir 6,5 prósent; kvót-
inn þar var 899 þorskígildistonn fyrir
tíu árum, en er nú 58 tonn.
Á norðurhluta Austfjarða eru 49
prósent eftir af kvótanum frá 1984,
Siglfirðingar halda 51 prósenti, 52
prósent eru eftir á höfuðborgar-
svæðinu, 53 prósent á Árborgarsvæð-
inu og í Strandasýslu eru nú einnig 53
prósent eftir af þeim kvóta sem var
þar árið 1984, 57 prósent eru eftir á
suðurhluta Austfjarða, það er ef Höfn
er ekki talin með. Aðrir landshlutar
sem hafa misst meira en lands-
meðaltal eru; Þingeyjarsýslur, Bakka-
fjörður og Vopnafjörður og Suðurnes.
Ef Blönduós og Skagaströnd eru
tekin sem eitt svæði kemur í ljós að á
þessu kvótaári hafa þessir tveir staðir
alls 6.488 þorskígildistonn en höfðu
5.953 árið 1984. Þeir hafa því bætt við
sig nærri 10 prósentum á þeim tíu
árum sem kvótinn hefur verið við
lýði.
Á Höfn eru nú eftir 98 prósent af
því sem var 1984 og í Eyjafirði eru
eftir 87 prósent af því sem var árið
1984, í Vestmannaeyjum eru eftir 78
prósent, í Skagafirði 76 prósent, í
Breiðafirði 73 prósent og á Akranesi
67 prósent.
Hér er landinu skipt í nítján svæði;
Suðurnes, höfuðborgarsvæðið, en þar
eru Hafnarfjörður, Kópavogur og
Reykjavík, Akranes er tekið sér, öll