Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 11
VIKINGUR Átaksverkefni Atvinnuleysistryggingasjóðs: Leggur pening í frystihús Bílddælinga -,Þetta er í raun og veru verkefni ^yggðastofnunar, þar á bæ eru menn hins vegar alveg lagstir í pólitíska fyrirgreiðslu. Við ákváðum þvf að teggja hluta af fjármagninu sem At- vinnuleysistryggingasjóður hefur til átaksverkefna í að koma frystihúsinu á Bíldudal í rekstur á ný,“ segir Pétur Sigurðsson, formaður Atvinnuleysis- h'yggingasjóðs, í samtali við Sjó- niannablaðið Víking. I lok ágúst hófst vinnsla á Rússa- þorski hjá Sæfrosti á Bíldudal. Atvinnuleysistryggingasjóður leggur fram fé sem nemur atvinnuleysisbót- um í þrjá mánuði hjá þeim sem vinna hjá fyrirtækinu. Oddi hf. á Patreks- firði sér um reksturinn, sem annars er á ábyrgð bæjarstjórnar Vesturbyggðar. „Við setjurn það skilyrði að fisk- vinnslan á Bíldudal fari ekki út í samkeppni við önnur fyrirtæki á svæðinu við kaup á hráefni,“ segir Pétur. Að öðru leyti sagði hann að sjóðurinn yrði að treysta á að rekstur- inn bæri sig og að þeir sem þar ynnu nú færu ekki á atvinnuleysisbætur þegar að þremur mánuðum liðnum. „Við reynum að meta hvaða fram- tíð er í þeim starfsemi sem við leggj- um peninga í. Við höfum ekki áður beitt okkur í hefðbundinni fiskvinnslu en höfurn aðstoðað fyrirtæki sem lagt hafa út í vinnslu á ígulkerjum,“ sagði Pétur. 4* TrimbleNavigation TRiMBLE NT100GPS HENTAR MJÖG VEL í ALLAR STÆRÐIR BÁTA Allar valmyndir á íslensku, góður skjár, Plotter, þrívíddarmynd, kompásrós, stórir stafir, vatnsþéttur og sterkbyggður. TÖKUM GAMLA LORANTÆKIÐ UPP í Á KR. 12.500,- TIL ÁRAMÓTA ÓHÁÐ ÁSTANDI OG ALDRI. ÍSMW? hí. Síðumúla 37, 108 Reykjavík Sími 68 87 44 - Fax 68 85 52

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.