Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 24
VÍKINGUR Einar Oddur Kristjánsson: „Ég sé ekki annað en að okkur veiti ekki af að stunda veiðar í Smugunni og á Svalbarða miðað við hag okkar á miðunum hér heima. Það liggur ljóst fyrir að menn eru ekki að sækja fisk þetta langt norður í höf nema af því að ástandið er svo slæmt sem raun ber vitni, sérstaklega í þorskinum." Einar Oddur er þeirrar skoðunar að rétt sé að semja við Norðmenn um veiðar á þessum hafsvæðum og að taka inn í þá samninga önnur svæði eins og Sfldarsmuguna og Reykjanes- hrygginn. „Ég tel að okkur beri að semja um þessa hluti alla,“ segir Einar Oddur. Aðalsteinn Jónsson: „Við eigum skilyrðislaust að halda áfrarn veiðum í Smugunni enda er þar um alþjóðlegt hafsvæði að ræða. Svalbarði er aftur á móti umdeildara svæði en að mínu viti á að láta reyna á veiðar þar.“ Aðalsteinn segir að veiðarnar í Smugunni séu ekki frábrugðnar veið- um Norðmanna á hafsvæðum í kring- um ísland eins og á Reykjaneshrygg og alls staðar annars staðar þar sem menn koma niður trolli. „Norðmenn hafa legið í rækjunni á miðlínunni milli íslands og Grænlands svo dæmi sé tekið,“ segir Aðalsteinn. „Eins og staðan er í dag tel ég að við eigum að halda áfram veiðum þarna norðurfrá hvað sem tautar og raular." Jakob Jakobsson: „Ég hef mestar áhyggjur af því að við séum að skemma málstað okkar sem strandríkis. Allt þar til á síðasta ári höfum við komið fram sem frumherjar í að reyna að efla rétt strandríkja sem mest og krefjast aukins réttar þeirra utan 200 mílna. Undanfarið höfum við fyrst og fremst hagað okkur sem úthafsveiðiþjóð. Ég sé ekki hvernig þessir hagsmunir geta farið saman,“ segir Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Ef ég spyr þig sem vísindamann, getum við réttlætt þessa sókn okkar í stofninn? „Þetta þýðir að kvóti til þeirra sem hafa réttinn til veiðanna verður minni.“ Erum við jafnvel að skaða okkur með þessum veiðum? „Það er erfitt að fullyrða eitthvað um það, en ég óttast það, þegar hugsað er til langs tíma. Ég er þó ekki að fullyrða neitt um það. Þetta er huglægt mat sem er ekki byggt á staðreyndum, en ég óttast að þetta geti skaðað okkur þegar litið er til lengri tíma.“ Gústaf Daníelsson: „Við erum með skip í Smugunni nú þannig að ég svara þessari spurningu játandi. Hinsvegar er ég ekki yfirmáta hrifinn af þessum veiðum því við erum að veiða úr kvótabundnum stofni á þessu hafsvæði þannig að nauðsynlegt er að semja urn veiðarn- ar,“ segir Gústaf Daníelsson fram- kvæmdastjóri Hólmadrangs. Hann telur að ástandið á fiskimið- unurn við ísland nú geri það að verkum að menn séu tilneyddir að reyna fyrir sér á öðrum miðum og Smugan sé nærtæk. BREMSUEFNI Fyrir spilgjarðir, spildiska ofl. Endurlímum á flestar gerðir bremsubúnaðar. Rennum bremsuskálar og diska. Skip, bílar, lyftarar ofl. Ath! Asbestlaust efni. ALIMINGAR Síðumúla 23 (Selmúlamegin) Sími: 91 - 814181, Fax: 91 - 814140 ORYGGI J 24

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.