Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 31
VIKINGUR mikil á tímum mikillar aflasölu ís- lenskra togara, - annað sé upp á ten- ingnum nú á tímum. Hann segir að vegna aflabrests hafi útflutningur til Hull og Grimsby dregist saman með þeirn afleiðingum að greiðslustöðvun varð hjá Fylki í apríl 1993. Páll Sveinsson, sem starfaði hjá fyrirtæk- inu síðustu ár þess, hefur stofnað nýtt umboðsfyrirtæki; Icebrit, og með því komið á samkeppni „í bransanum“. A launaskrá hjá Fylki síðustu árin hafa verið að meðaltali 25 manns og eru þeir allir í fullri vinnu. Nokkrum starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum, en þeir stofnuðu verktaka- fyrirtæki lil þess að taka við löndun á fiski. Jón tekur fram að alltaf sé erfitt að þurfa að segja upp hæfu fólki þó að slíkt sé nauðsynlegt á krepputímum og finnst honum nauðsynlegt að horfa frarn á veginn með baráttuhug og bjartsýni. Að sögn Jóns eru ákveðnar vís- bendingar í landinu um efnahagslegan vöxt þó að efnahagsstaðan almennt í Bretlandi hafi verið óviss um tíma. Jóni finnst, þrátt fyrir gengisfellingar haustið '92 og þá vaxtalækkun sem orðið hefur síðan þá, að kaupgeta almennings sé mun meiri en verið hefur undanfarið. Það sjáist einkum á aukinni sölu á húsum, bílum og öðr- um fasteignum og því að nú þori fólk að eyða rneiru af tekjum sínum í fjár- festingar. Skattar hafi hækkað og menn sýni meira þor í viðskiptaKfinu. Opinbert líf og einkalíf Jón var í heimavistarskóla á aldr- inum átta til átján ára og lauk stúd- entsprófi í frönsku, þýsku og sagn- fræði árið 1963. Hann býr ásarnt konu sinni, Rosemary, og dætrum þeirra, Rachel og Cathy, í glæsilegu sveitasetri í Ulseby. Þangað koma persónulegir vinir og opinberir gestir í heimsókn en í hjúskapartíð Jóns og Rosemary hafa rnargir notið sérstakrar gestrisni fjöl- skyldunnar. Tekið skal frarn að Jón talar mjög góða íslensku. Hann er tvígiftur. Fyrri konu sinni, Mary Butt, kynnt- ist hann í gegnum foreldra Mary, en þeir áttu útgerðarfyrirtæki í Grimsby. Mary og Jón voru barnlaus og skildu eftir þriggja ára hjónaband árið 1969. Hún fór til Kanada en hann var áfram í Grimsby. Ari síðar kynntist Jón Rosemary, á vinsælum hótel- og skemmtistað. Hún var dóttir eiganda skemmtistaðarins og í ágúst giftu þau sig við hátíðlega athöfn. í brúðkaupið mætti fjöldi manns, þar á nteðal Páll Aðalsteinsson, sem lést aðeins þrernur mánuðum síðar. Cathy, yngri dóttirin, er 21 árs og Rachel 23 ára. Þær sóttu, eins og foreldrar þeirra gerðu, nám í einka- skólurn bæði sem börn og unglingar. Cathy lærði frönsku og lögfræði í Birmingham University en Rachel útskrifaðist í júní í fyrra með BA-próf í mannfræði frá University of Nottingham eftir þriggja ára háskóla- nám. Rosemary hefur verið virk í félagsstörfum. Hún hefur til dæmis starfað að fjáröflun fyrir blinda í Englandi og um tíu ára skeið var hún formaður félags kvenna í Grimsby (Grimsby Ladies Blind Committee). Hún sagði formannsstöðunni lausri fyrir tveimur árum, m.a. til að endur- mennta sig í skrifstofustörfum. Fylgifiskar ræðismanns- starfsins Ræðismannsstarfið krafðist iðulega talsverðrar vinnu, einkum vegna fisk- veiðideilna, en Jón segir: „Það fylgdi því talsvert álag að vera í opinberum þjónustustörfum og móttöku íslenskra þjóðhöfðingja og embættismanna, en einnig ánægjulegt samkvæmislíf. Það komu í ljós ýrnsir fylgifiskar starfsins og ég reyndist of veikgeðja til að standast freistandi áfengisveitingar í því félagslega samhengi. Um tíu ára bil barðist ég við drykkjusýki en aðeins af hálfum huga. Ég bar þann sjúkdóm sem einungis er hægt að halda í skefjum með vínbindindi en gafst að lokum upp fyrir honum og leitaði ntér hjálpar í London. Þangað fór ég tvisvar í meðferð og var í fyrra skiptið (árið 1990) í sex vikur og í síðara skiptið (vorið 1991) í einn mánuð. Það mun hins vegar hafa verið þann 19. apríl 1991 sem ég „féll“ og tók síðasta vínglasið, því ég stóð fljótt upp aftur. Nú geng ég tólf sporin óhikað og finn góða frelsistilfinningu fylgja mér, þar sem ég er laus við áfengið. Tólf sporunum fylgir sjálfsskoðun, sem oftast er ánægjuleg, en hún er stundum bæði kvalafull og ásakandi. Ég lifði og hrærðist í blekkingu og villandi rödd mín var sannfærandi þegar hún sagði ntér að ég réði við mín vandamál, - sem væru auk þess mín einkamál. Eiginkonunni tókst vel að rækja hlutverk meðvirks maka alkóhólista, en hafði engu að síður aflað sér upplýsinga um stofnun fyrir áfengismisnotendur og sagt mér frá henni. Slíkt fannst mér, á þeirn tíma, óforskammað og mér var misboðið, 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.