Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Blaðsíða 23
VÍKINGUR
Eru veiðar íslend-
inga í Smugunni
réttlætanlegar?
Það er greinilegt að ekki eru aliir á einu máli um réttmæti þess að Islendingar stundi veiðar í Smugunni,
hvað þá á Svalbarðasvæðinu. Hér á eftir fara viðhorf nokkurra manna um réttmæti þessara veiða. Eins og
kemur fram í viðtölunum við þá, þá eru mörg sjónarniið á lofti. Það er nokkuð ljóst að þó svo að okkur takist
að hefja viðræður við Norðmenn um veiðar í Smugunni, þá á eftir að ræða með hvaða hætti hugsanlegur kvóti
okkar þar skiptist milli íslenskra veiðiskipa. Það er því mikil óvissa framundan, þrátt fyrir fyrirhugaðar
viðræður. Þess ber að geta að viðtölin voru tekin áður en væntanlegar viðræður við Norðmenn komu til.
Arthur Bogason,
formaður Landssambands smábátaeigenda:
Er ekki stoltur af framgöngu
þessara manna
gæti farið svo að trillukarlar settu sér
einhliða kvóta, ef aðrir gera það
„Ég, sem formaður Landssambands
smábátaeigenda, er því fegnari sem
fleiri togarar fara út úr landhelginni.
Ég get hins vegar ekki sagt að ég sé
stoltur af framgöngu þessara manna,
því á sama tíma og trillukörlum er
meinað að fiska sér til lífsviðurværis
við strendur íslands með nokkra öngla
að vopni, vegna þess að lögð hefur
verið fram krafa um ábyrga fiskveiði-
stjórnun í nafni vísinda, ryðjast þessir
menn inn í þorskstofna annana þjóða
og eru jafnvel að sprengja trollin aftan
í þessum döllum sínum. Ef þetta heitir
að vera samkvæmur sjálfum sér, þá er
mér öllurn lokið,“ segir Arthur Boga-
son, formaður Landssambands smá-
bátaeigenda, þegar hann er inntur eftir
áliti á veiðum íslenskra togara í
Smugunni og við Svalbarða.
Ég heyri að þú ert aldeilis ekki
hlynntur veiðum okkar á þessum
svæðurn.
„Ég tel að við höfum farið offari í
þessu máli. A sama tíma og verið er
að drepa umbjóðendur mína í nafni
ábyrgrar fiskveiðistjórnunar haga þeir
menn, sem hafa heimtað þetta kerfi
hér við land, sér með þessum hætti
fyrir utan 200 mílurnar. Það liggur við
að það þurfi að rannsaka hvað gerist
þegar menn fara út fyrir 200 mílurnar.
Það er greinilegt að þá verður einhver
gríðarleg hugarfarsbreyting.
Hugmyndin urn að setja sér einhliða
kvóta sýnir að þessir útgerðarmenn
telja sig eiga fiskinn, sama hvar hann
er. Það liggur þá beint við, ef þetta
verður raunin, að trillukarlar setja sér
einhliða kvóta, kvóta sem þeir geta
lifað af.“
Má skilja þig þannig að það sé
alvara í því sem þú segir?
„Við munum hiklaust hugsa það
mál ef framvindan verður þessi í
Smugunni. Fordæmið verður þá kom-
ið. Ég vil taka skýrt fram að gagnrýni
mín á þessar veiðar beinist á engan
hátt gegn sjómönnum, þeir sigla
samkvæmt skipununt úr landi. Það er
skrautlegt að fylgjast með því að
menn, sem höfðu hátt urn að við
ætturn ekkert erindi þarna norðureftir,
eru nú orðnir forsvarsmenn fyrir því
að við veiðum þarna,“ segir Arthur
Bogason, formaður Landssambands
smábátaeigenda.
23