Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Síða 16
VÍKINGUR
Jón Grímsson hefur verið búsettur á vesturströnd Bandaríkjanna:
Fiskurinn er svo verðmætur að
þú verður að henda honum strax!
Jón Grímsson er fæddur og upp-
alinn á ísafirði en hefur verið búsettur
á vesturströnd Bandaríkjanna síðan
1976. Hann gerði það sem marga
dreymir um; stakk sér í djúpu laugina
og fór utan. Þar er hann kvæntur, á tvö
börn og hefur rekið eigið fyrirtæki í
tíu ár. Jón hefur fiskað upp og niður
eftir vesturströnd Bandaríkjanna á
ýmsum bátum og í Alaska á eigin
frystitogara. Hann lýsir bandarískri
fiskveiðistjórnun sem „vitleysu þar
sem menn henda helmingi meiri afla í
hafið en þeir koma með í land“ og
hefur áhyggjur af því að Islendingar
séu að synda inn í sama ruglið.
„Ég vann hjá náunganum sem ég
fór út með í San Francisco í eitt ár á
um það bil 100 tonna bát með skut-
drætti. Ég var náttúrulega ekki með
nein réttindi til að vinna þarna en hann
sá bara um þetta fyrir mig og þegar ég
ætlaði að hætta þá fékk hann fyrir mig
atvinnuleyfi eins og skot. Svo fór ég
upp til Alaska á krabbaveiðar. Vann
þar fyrst með vestfirskum manni sem
heitir Pétur Njarðvík og fór síðan út á
ýmsum skipum frá Alaska, Oregon,
Washington og Kaliforníu. Ég var
háseti, stýrimaður og skipstjóri. Það
gekk ekkert illa að vinna sig upp ef
maður lagði bara hart að sér. Það
þurfti engin réttindi eða nokkurn ska-
paðan hlut, það var bara spurt að því
hvað maður gæti gert og svo reyndi
maður að sanna sig.“
Hagnaðist mest á því
í Bandaríkjunum
að selja Rússum!
„Ég keypti 75 tonna bát í félagi við
Guðjón Guðmundsson, sem býr enn-
þá úti. Það var ekkert hlaupið að því
að kaupa sinn eigin bát - fá lán og
þess háttar - en rnaður komst fram úr
því einhvern veginn. Þetta var í kring-
um 1982, á þeim tíma þegar það var
algjört hrun í efnahagslífinu þarna
vestra. Vextir fóru upp úr öllu valdi og
Carter forseti réð ekki við neitt. Þá
voru þessir bátar á hausnum og ég
fékk minn í Seattle á mjög hagstæðu
verði. Báturinn var smíðaður fyrir um
eina milljón dollara og við keyptum
hann á 200 þúsund dollara, eða fyrir
einn fimmta af smíðakostnaðinum.
Síðan fórum við með bátinn niður til
San Francisco, þar sem ég hafði verið
skipstjóri í tvö ár. Við fiskuðum á
honum upp og niður ströndina, aðal-
lega karfa og „pacific witing“, sem er
skyldur lýsu, og seldum okkar fisk á
bandarískum mörkuðum. A sumrin
veiddum við fyrir Rússa og höfðum
góðar tekjur af því. Ég hafði aldrei
meira upp úr verslun í Bandaríkjunum
en þegar ég var að selja Rússunum!
Ég hafði gaman af Rússununr, það var
ágætt að versla við þá, þeir voru aldrei
með neitt kjaftæði og alltaf til í að
taka þátt í einhverjum fíflagangi. Einu
sinni keypti ég fullt af flugeldum fyrir
þjóðhátíðardag Bandaríkjanna, 4. júlí,
og lét Rússana hafa helminginn. Síðan
gerði ég strandgæslunni aðvart svo
hún fengi ekki hjartaáfall og fór í
sjóorrustu með flugeldum - Rússarnir
voru rúmlega hundrað og við fjórir.
Marel vogir
Markviss vinnubrögð - aukin verðmæti
Marel vogir fyrir þá sem kjósa öryggi og áreiðanleika
Marel hf. Höfóabakka 9 112 Reykjavík
Sími: 91-878000 • Fax: 878001 Telex: 2124 MARELIS
7^-
msmsr
16