Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Side 17
VÍKINGUR
Auðvitað tóku þeir okkur í bakaríið en
við náðum samt að skjóta einni stórri
rakettu inn í brú hjá þeim! Rússarnir
komu aldrei um borð hjá okkur öðru-
vísi en það væri „kaptain kommisar“
með þeim - greinilega þrautreyndir
KGB-kappar sumir hverjir.“
Missti bát og
smíðaði frystitogara
„Við Guðjón gerðum þennan bát út
í fjögur ár en síðan misstum við hann.
Báturinn sökk á 180 föðmum norður
af San Francisco. Við misstum einn
rnann með bátnum, ungan Víetnama
sem var nýkominn til Bandaríkjanna.
Seinna komust við að raun um að
báturinn sökk fyrir hreinan klaufaskap
í manninum sem var með hann. Við
vorum auðvitað tryggðir í bak og
fyrir, eins og allir sem stunda útgerð í
Bandaríkjunum þurfa að vera, og
fengum bætur fyrir bátinn.
Við notuðum peningana til að kaupa
skip til endurbyggingar á uppboði.
Skipið var upphaflega byggt sem
rannsóknarskip en áður en við keypt-
um það var það við hörpudisksveiðar.
Við breyttum því í frystitogara, - það
voru agalegar tilfæringar. Báturinn
var bara með eitt dekk og við þurftum
að lengja hann og umbreyta á allan
hátt. Ég er sannfærður um að sá sem
átti bátinn fyrst gæti ekki þekkt hann í
dag þótt hann sæti á dekkinu, upp-
haflegt útlit hvarf alveg gersamlega.
Við seldum japönsku fyrirtæki 25%
hlutafé til að fá meira fé til endur-
byggingarinnar. A þeim tíma voru
flestir bandarískir bankar alveg á því
að það yrði að hafa Japani með í
ráðum - þegar við síðan keyptum
Japanina út voru bankarnir alveg
jafnánægðir, vildu ekki sjá þá lengur!
Þetta var rúmlega 40 metra skip
með 22 ntanna áhöfn og við heilfryst-
um fisk um borð. Veiddum allar
tegundir sem þarna eru og mátti veiða
á sínum tíma. Sumar þessara tegunda
eru geysilega verðmætar, sérstaklega
á Japansmarkaði. Fyrsta árið gekk
útgerðin alveg glimrandi vel. Þá var
aflaverðmætið rétt tæplega níu mán-
aða veiðar. Eftir það fór aflaverð-
mætið jafnt og þétt niður á við, alveg
þar til við ákváðum að hætta veiðum.“
Öskraði bara á íslensku!
„Það voru allra þjóða kvikindi á
bátnum hjá okkur. Ég get sagt þér
skemmtilega sögu af því. Það var þan-
nig að ég var að breyta veiðum úti á
sjó. Við vorum að fara að fiska fyrir
Norðmennina og ég var með skeyti
frá konunni minni, sent var með skrif-
stofuna. Það átti bara að skella
fiskinum í pönnur, ekki viðhafa neina
flokkun, og 3% af fiskinum máttu
vera undir tveimur kílóum í heildar-
BOSCH
ÞJÓNUSTA
DIESELVERKSTÆÐI
VARAHLUTAÞJÓNUSTA
ÁRATUGA ÞEKKING OG REYNSLA
í STILLINGUM OLÍUKERFA DIESELVÉLA
BRÆÐURNIR
f©) ORMSSONHF
LÁGMÚLA 9, SIMI 38820
17