Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1994, Page 30
VÍKINGUR
Jón Olgeirsson í Grimsby:
Fyrir Islands hönd
Viðtal og myndir: Agústína Jónsdóttir
Jón Olgeirsson er búsettur í
Bretlandi og fæddur í hafnarborginni
Grimsby í janúar 1945. Daglega er
hann ávarpaður sem herra Olgeirsson
en skírnarnafn hans er John Trevor.
Líffræðilegir foreldrar hans eru
amerískir og komu þeir honum í fóst-
ur til íslensku hjónanna Þórarins
Olgeirssonar og Guðrúnar Zoega, sem
búsett voru í Grimsby.
Guðrún fluttist til íslands eftir að
hún varð ekkja og lést á íslandi árið
1989. Þórarinn var skipstjóri og tók
þátt í köldu stríði við breska útgerð-
armenn fyrir íslands hönd.
Olgeirsson-feðgarnir hafa haft
veruleg áhrif með afskiptum sínum af
sjávarútvegsmálum á breskum mark-
aði, og þar með á fiskveiðimöguleika
íslendinga síðastliðna áratugi. Báðir
eru þeir vel kunnir fyrir afgerandi
hlutdeild í landhelgisdeilum og fyrir
að hafa, vegna ræðismannsstarfa fyrir
Island í Grimsby, leyst ýmis mál sem
upp hafa komið og snerta samskipti
við Island og Islendinga erlendis.
Jón hefur alla tíð verið breskur rík-
isborgari en Þórarinn varð það árið
1936. Þórarinn fékk stórriddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu sautján
árum síðar fyrir störf í þágu Islands og
var hann þá vararæðismaður í Grims-
by.
Sendiherra Islands bað þess árið
1971 að Jón yrði skipaður vararæðis-
maður vegna þess að þá treysti hann
sér ekki til að vera opinber talsmaður
íslands í fimmtíu mílna þorskastríð-
inu. Þremur árum síðar tók Jón við
ræðismannsstarfi af Carli Ross, en
Ross sagði af sér störfum vegna þess
að honum fannst fulllangt gengið á
miðunum á þeim tíma sem Geir
Hallgrímsson, þáverandi forsætisráð-
herra, stóð í viðræðum við Harold
Wilson.
Arið 1967 var Jón sendur til St.
Johns á Nýfundnalandi til útgerðar-
fyrirtækis þar sem var voldug bresk
togarasamsteypa að hálfu leyti í eigu
Rosshópsins (The Ross Group Ltd.)
og sá fyrirtækið um frystingu, söltun
og mjölvinnslu. Jón var einnig sendur
til Kanada í eitt ár að vinna við togara-
útgerð og fannst það góð reynsla.
Þegar hann kom til Grimsby að lokin-
ni Kanadaför hóf hann störf hjá stóru
útgerðarfyrirtæki í Grimsby, Boston
Deep Sea Fisheries Ltd., sem sá m.a.
um sölu á ísuðum fiski úr íslenskum
togurum. Páll Aðalsteinsson var
framkvæmdastjóri þar og þekkti Jón
hann að öllu góðu, bæði sem skip-
stjóra og umboðsmann, auk þess að
hafa ungur að aldri farið með Páli til
sjós á togara hans. Jón leit reyndar á
Pál sem annan „fósturföður" sinn, en
hann lést í bílslysi árið 1970 þegar Jón
var 25 ára. Eftir Iát Páls tók Jón við
umboðsdeild fyrirtækisins og upp frá
því var fyrirtækið Fylkir stofnað.
Um Fylki og efnahagsmál
Jón varð í upphafi framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og keypti síðan
Fylki árið 1977. Hann var ánægður
sem framkvæmdastjóri en viður-
kennir að vinnan hafi verið gífurlega
30