Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1999, Page 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1999, Page 56
J. Hinriksson ehf Vöruþróun í samstarfi við Háskóla íslands Sem leiðandi fyrirtæki i framleiðslu tog- hlera í heiminum hefur J. Hinriksson komið fram með margar nýjungar á undanförnum árum sem hefur styrkt stöðu fyrirtækisins, jafnt hér á landi sem erlendis. Þessa sterku markaðsstöðu má að hluta til rekja til þeirr- ar miklu þróunarvinnu sem fyrirtækið legg- ur í áður en nýir toghlerar eru settir á mark- að, segir Atli Már Jósafatsson, sölu- og markaðsstjóri fyrirtækisins. Fyrir tæpum sex árum hóf J. Hinriksson samstarf við verkfræðideild Háskóla fs- lands í þróun og rannsóknum á flæði tog- hlera sem hefur stytt þróunarferlið til muna. „Hugmyndir að nýjum hlerum vakna hér innan húss og við grunnvinnum þær hér, en förum síðan með þær til Háskólans. Þar eru þær prófaðar í tölvu Háskólans, en til gamans má geta þess að forritið sem not- að er, er það sama og Boeing flugvéla- framleiðendurnir nota. Útreikningar Há- skólans sýna okkur skverkraft og viðnám hleranna i sjó sem segir okkur hversu hag- kvæmir viðkomandi hlerar eru,“ segir Atli Már. Þegar hagkvæmasta lausnin er fundin er smíðað módel af hlerunum, sem síðan er prófað í tilraunatanki. Lokaprófanir fara síðan fram um borð í íslenskum togskipum og á skipum Hafrannsóknarstofnunarinnar. „Á þennan hátt höfum við þróað nýjustu gerðir af hlerum J. Hinrikssonar og náum meiri hagkvæmni með markvissari vinnu- brögðum í þróunarvinnunni," segir Atli Már. Enn ein ný gerð toghlera er að koma á markað um þessar mundir frá J. Hinriks- syni og hefur verið í notkun á Sjóla frá Hafnarfirði. Hér er um að ræða nýja gerð fjölnota toghlera sem hafa fengið spænska heitið „El Cazador" sem merkir „Veiðimað- urinn“ á íslensku. Atli Már segir hlerana þróaða upp úr tveimur eldri gerðum toghlera fyrirtækisins, það er „Concord" V-laga botntrollshlerun- um og „Tveggja Spoilera" flottrollshlerun- um. Nýttir eru kostir flottrollshlerans, sem Atli Már segir vera einn þann kraftmesta á markaðnum og í „El Cazador" hlerunum koma þeir þannig fram að hægt er að láta hlerana vinna óháða botnsnertingu þar sem aðstæður leyfa. „El Cazador" hlerarnir eru hannaðir með það fyrir augum að nýt- ast bæði til flot- og botntrollsveiða þannig að hægt er að nota þá við botntrollsveiðar án þess að vera á botninum. Cetrek ProPilots 731 og 741 Ný sjálfstýring, ný tækni fyrir stærri báta. Tengist seguláttavitum, gyro, GPS og plotter. Hægt er að tengja aukastjórnpúlt, hlutfallastýri, stýrisvísi og áttavitaaflestur. I f 6** r-,,. . o — TmT^m w . . * O o Já <a fs> 1 OR.SIGMUNDSSQN Fiskislóð 84 • Sími 520 0000 • Fax 520 0020 56 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.