Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 11
NÁTTOllUim.
169
hann komst i eigu drottningarinnar, var hann 186'/io karat að
þyngd. Fenginn var demantafágari frá Amsterdam til að fága st.'in-
inn upp og gjöra hann eins og hann litur út hér á myndinni, og
var hann eftir þá aðgerð ekki nema 106'/i« karöt (=21—22 g).
Það hafa verið leiddar ýmsar getur að uppruna þessa demants.
Það eru til sögur um það, að í svonefndri Golkonda n.ámu á Ind-
landi hafi fundizt demantur, sein ófágaður vó 787 karöt. Tavernier
kveðst hafa sé5 þenna stein fágaðan og hafi hann vegið ca. 280
karöt. Hefir sá steinn oft verið nefndur Stór-Mógúll. Frakkneskur
hermaður, stal fögruin demant úr auga skurðgoðs eins í Brama-
musteri á Indlandi. Skipstjóri nokkur stal aftur steininum af her-
manninum og komst með hann alla leið til Evrópu. Orloff fursti,
einn af vildarvinum Katrínar II. Rússadrottingar, keyþti steininn
fyrir ca. 180,000 kr. Vó hann 194n/.i karöt. Furstinn gaf Katrínu
drottningu steininn, sem lenti meðal konungsgersema Rússastjórn-
ar og var kallaður Orloff eftir gefandanum. Hafa sumir haldið, að
bæði Orloíf og Koh-i-noor liafi verið brot af hinum upprunalega
Stór-Mógul, sem tegld liafi verið til sér í lagi. 1526 er getið um
demant, er lenti í hershöndum í Agra í Indlandi. Er þess jafnframt
getið, að hann hafi vegið 187 karöt. Telja ýmsir líklegt, að það hafi
verið Koh-i-noor, því að hann hafði að heita mátti alveg þessa
þyngd er hann komst í hendur Evrópumanna.
Excelsior, sem næsta mynd er af (2. mynd), á ekki Ianga sögu
sem gimsteinn, hann fannst í svonefndu Jágerfontein i S.-Afríku
1853. Hann vó ófágaður eins og hann kom úr jörðinni 969Ú2
karöt, var skipt niður í 10 steina er vógu frá 68—13 karöt.
„Regent" eða „Pitt“ demantinn var fallegur og stór steinn,
sem fannst á Indlandi eða á Borneó, hann vó 410 karöt og var
keyptur af Pitt landstjóranum í Madras fyrir 416,000 kr., hann var
síðar keyptur af Frakkakonungi (1717) fyrir 160,000 kr. Hann
hafði létzt við fágunina niður í 196u/ib karöt. Á timum stjórnar-
byltingarinnar var honum stolið ásamt öðrum gimsteinum krún-
unnar, en hann fannst aftur og hefir síðan verið í Frakklandi.
Sancy, gimsteinn, sein sýndur er á 3. mynd, vó 53i2/ig karöt,
það er sagt, að hann hafi verið í eigu Karls djarfa, de Sancy,
Elísabetar Bretadrottningar, Henríettu Mariu, Mazarín kardínála,
Lúðvík XIV. Steininum var stolið ásamt Pitt á tímum stjórnar-
byltingarinnar og hefir síðar verið í eigu Spánarkonungs, prins
Demidoff og indversks fursta.
Florentine eða Tuscany demantinn (4. mynd) var með dálítið