Náttúrufræðingurinn - 1932, Side 19
177
NÁTTÚKUPR.
Rannsókn dr. Hagerups sýndi, að tvíkynja lyngið hefir tvöfalt
fleiri litninga en hið einkynja. Með því var skorið úr öllum vafa
um, hvort tvíkynja lyngið væri sjálfstæð tegund eða eigi.
Hið ytra eru tegundir þessar nokkuð aðgreindar. Stöngull
einkynja lyngsins er fíngerður, skriðull og ætíð meira eða minna
rótskeytur, oftast er hann rauðleitur. Á tvíkynja lynginu er)
stöngullinn aftur á móti grófgerður, grænn að lit, uppsveigður
eða nær uppréttur og aldrei skriðull eða rótskeytur. Yfirleitt er
tvíkynja tegundin öll stórvaxnari og grófgerðari en hin. Kemur
það einnig allgreinilega fram á blöðunum, sem á einkynja lyng-
inu eru smágerð, nærri striklaga, en á hinu tvíkynja breiðari og
nær sporbaugótt að lögun. Erfitt er þó að greina sundur tegund-
irnar eftir þessum einkennum einum saman, ef þær eru blóm-
lausar, en við skoðun blómanna þarf hina mestu aðgæzlu sakir
smæðar þeirra. Oft er nærri bezt að greina tegundirnar þegar
aldinið er þroskað, því að á tvíkynja tegundinni hanga fræflarn-
ir oftast við aldinið, en á þeirri einkynja er vitanlega ekki um
neina l'ræfla að ræða í þessu sambandi, þar sem blómin eru ein-
kynja. —
Eftir því sem framast er kunnugt, er útbreiðslu þessara
tveggja tegunda nokkuð ólíkt háttað. Tvíkynja lyngið er miklu
norðlægari planta en hitt. Þannig vex það eingöngu á Grænlandi
og er talið mjög útbreitt um norðurheimskautslöndin, en þegar
kemur suður á meginland Evrópu er það aðeins fundið á háfjöll-
um. Einkynja tegundin vex í belti, allt í kring um hnöttinn, þeg-
ar kemur suður fyrir heimskautsbauginn nyrðri og alllangt suð-
ur á bóginn. Á hinum norðlægari vaxtarstöðum er það mjög oft
ófrjótt. —
Hér á íslandi eru báðar tegundirnar fundnar, en allt er
óvíst um útbreiðslu þeirra, eða hvor tegundin sé algengari. Ef
ráða má af líkum eftir útbreiðslu þeirra í nágrannalöndum okk-
ar, Grænlandi og Færeyjum, er sennilegt að tvíkynja lyngið sé
aðaltegundin hér á landi. Á Færeyjum er hún bæði þroskameiri
og útbreiddari en hin, og á Grænlandi er hún einráð.
Fróðlegt væri ef einhverjir athugulir menn vildu veita
krækilyngstegundum þessum athygli, og væri eg þakklátur fyrir
allar upplýsingar um þær.
Akureyri, 8. okt. 1932.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum.