Náttúrufræðingurinn - 1932, Qupperneq 31
NÁTTÚRUFR.
189
Marárdalur.
Út af smágrein i 6. örk Náttúrufræðingsins þ. á. geri ég þessa athuga-
semd: Nafn dalsins mun vera Marárdalur, sbr. marahláka, mar(a)þýtt, mar(a)-
autt. í leysingum fyllist hann af vatni, unz »áin« fellur út um farveg þann,
sem þurr verður er fram á sumar kemur, og þá er notaður sem vegur inn
i dalinn. Maradalur gæti og verið skiljanlegt nafn (=þýðudalur), en liklegra ■
er, að á hafi breytzt i a, en að r-i hafi verið bætt inn í, eins og nú heyrist
venjulega i framburði.
Dalurinn er skál, aflöng frá austri til vesturs, i móbergsrana sem gengur
vestur frá Hengli, milli Hengildals (nú nefndur Engidalur) og nyrðri Bolavalla.
Rani þessi er nú nefndur Þjófahlaup. Dalbotninn er allur gróin grund, nema
lítið árfar. Gripheldir hamraveggir lykja um hann nema á tveim stöðum: ár-
farið suður úr honum og skarð noröur úr honum innanverðum: þar er bergið
fláandi brekka, er hreindýr mundu hlaupa sem sléttan flöt, og er því hætt
við, að sagan um fall 11 hreina í dalnum, vegna þess að þau komust ekki
út um »einstigið«, sé orðum aukin. Ég og félagi minn fórum úr dalnum norð-
ur um fláaskarðið og teymdum 2 hesta hvor. Þar, eins og í árskarðinu, sást
votta fyrir hleðslu, frá þeim tíma, er »bolarnir, er surnargöngu skyldu hafa á
»völlunum«, voru byrgðir inni í Marárdal, meðan þeir voru að spekjast og
venjast útilegunni. — Þá er við komum norður úr dalnum, varð þvert fyrir
okkur gjá, afardjúp, en mjó, svo hlaupfært mundi huguðum manni, eða þeim,
er lif sitt ætti að leysa. Kom mér þá i hug, að þar af mundi nafnið Þjófa-
hlaup dregið. Slíkar gjár eru smíði vatnsrása í móbergsfjöllum.
B. B.
Aths. Þótt hreinum sé auðfarið i snjólausu um skarðið norður úr daln--
um, er eigi víst að svo sé stundum að vetrarlagi, þegar ha.Cíeani og svelf
leggjast yfir bergið, og líklegast er að svo hafi verið, er Guðmundur fékkst-
þar við hreinana. Virðist mér því þetta eigi þurfa að rýra frásögn hans um»
veiði hans i dalnum að neinu leyti.
G. G. B.
Rítfregnír.
Steinn Emilsson: Lössbildung auf Island. — Rit Vísindafélags íslend-
inga nr. 11. Rvk 1932. 19 bls. 2 myndir i texta. — í þessari grein gjörir höf.
grein fyrir því, úr hverju jarðefnum íslenzkur jarðvegur hafi myndazt og að
síðustu bendir hann á, að íslenzkur fokleirs jarðvegur eða gosösku jarðvegur
sé ekki sambærilegur við erlendan lössjarðveg. En sennilega mun þurfa ýtar-
legri rannsóknir til þess að gjöra þessi viðfangsefni nægilega ljós.
H. H. Eiriksson: Obseruations and measurements of some glaciers in
Austur-Skaftafellssijsla. In the summer 1930. V. í. nr. 12. Rvík 1932.
1 myndatafla og 14 myndir í lesináli, 24 bls.
Höf. hefir mælt legu framjaðars 3 jökla i Hornafirði, og sett niður á kort,
er greininni fylgja, legu þeirra það ár og legu þeirra 1904, þegar herforingjaráðs-