Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 6

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 6
dýpt hlaupsins austan Hafurseyjar er minna vitað en uppi við jökul hjá Sandfelli virðist það hafa verið a. m. k. 15—20 m (Páll Sveinsson 1930). Einnig er vitað að 2—3 m háar jakahrannir voru á hólmum í Kúðafljóti eftir hlaupið 1918. Þorvaldur Thoroddsen (1920) telur að hlaupið 1625 hafi á miðjum Mýrdalssandi verið 28 m djúpt oghlaupið 1755verið 100—150 m djúpt fyrir norðan Hafursey. Ekki er ljóst hvað hann á við þegar hann talar um miðjan Mýrdalssand en hvað hinu atriðinu víkur við fer hann vafalaust eftir sögn- inni um að vatn hafi þá runnið fram um Klofgil í Hafursey. EFNISFLUTNINGUR KÖTLUHLAUPA Takmarkaðir möguleikar eru á að reikna það magn efna, sem Kötluhlaup bera fram. Nokkur atriði liggja þó fyrir, þau er gefið geta nokkra hugmynd um það gífurlega magn, sem um er að ræða. Einna besta mynd af því gefa áður- nefndir „jöklar“, en haft skal í huga að jafnframt því, sem þessar malar- og sanddyngjur mynduðust færðist ströndin fram og eru um það margar heimildir bæði eldri og yngri (Safn til sögu íslands IV). 1 hlaupinu 1918 er talið að á breiðum kafla milli Hjörleifs- höfða og Höfðabrekkufjalls hafi sand- urinn færst fram um 4 km (Guðgeir Jó- hannsson 1919) og út á allt að 40 m dýpi, en að ári liðnu hafi Kötlutangi verið orðinn 2 km (Gísli Sveinsson 1919). Nú er hann að mestu horfinn. Jafnframt þessu hækkar svo sandurinn mjög verulega og við síðasta hlaup að dómi Einars H. Einarssonar (1975) um allt að 9 m a. m. k. á kafla milii Hjör- leifshöfða og Kaplagarða. VITNISBURÐUR SJÓNARVOTTA Enginn hefur séð Kötluhlaupið eins vel og Kjartan Leifur Markússon (1895—1964) eða haft tækifæri til að horfa á það frá óhultum stað, af Hjör- leifshöfða en þarátti hann þá heima. Að sögn Einars H. Einarssonar bónda og náttúrufræðings að Skammadalshóli í Mýrdal hafði Kjartan Leifur skrifað nákvæma lýsingu á því sem fyrir augu bar þann minnisverða dag 12. október 1918 er hlaupið geystist frarn báðum megin Höfðans. Ekki hefur heppnast að grafa upp hvar sú lýsing hefur verið prentuð og sama er að segja um lýsingu Gísla hreppstjóra Magnússonar í Norð- ur-Hjáleigu i Álftaveri, sem Gísli Sveinsson (1919) sýslumaður getur um í riti sínu um Kötlugosið 1918. Af þeim sökum fór ég þess á leit við Einar H. Einarsson að hann skrifaði niður fyrir mig lýsingu Kjartans Leifs á hlaupinu eins og hann hafi lýst því fyrir Einari. Hann varð góðfúslega við þeim tilmæl- um og fer hér á eftir útdráttur úr lýsingu Kjartans Leifs eins og Einar hefur skrif- að hana en ekki þykir ástæða til að taka hana með hér í heild. „Hraði hlaupsins var það mikill að ekki mundi léttur maður hafa haft að forða sér undan því þótt um skamma leið væri að ræða. Ekki sást neitt telj- andi vatn fyrr en hlaupröndin var komin fram hjá. Hlaupið rótaði upp garði á undan sér, stundum af svo miklum hraða að sandurinn virtist velta um sjálfan sig líkt og þegar brimalda brotnar á grunni. Líkara var það einhvers- 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.