Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 11

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 11
fyrirstöðu að hún kunni að vera meira en milljón ára og lrafi því eldvirkni haldist þarna svona lengi. Svo djúpt rofin er þessi eldstöð að hún hlýtur að vera nokkuð gömul. í öðru lagi er ljóst að jarðhitinn er tengdur þessari gömlu myndun. Geta má þess ennfremur að á tveim stöðum eru volgrur í giljum austan við svo nefndan Múla. Eru tvær í landi Þorvaldseyrar, en ein mun í landi Seljavalla, því hún er austan megin í gili því er Merkigil heitir og mun skilja lönd þessara jarða. Mestur hiti þarna er 12,5°C. Yfirvegandi líkur sýnast mér fyrir því að þessar volgrur séu tengdar sömu myndun, en ofan á þær hafa lagst yngri myndanir, bæði hraun, jökulberg og túfflög, en í þeim blandast heita vatnið því kalda, og því verður hitinn ekki meiri. Ekki sýnist trúlegt að djúpt sé þarna á heitara vatn. I samræmi við það, sem áður er sagt telst líklegast að volgrurnar á þessu svæði eigi rætur að rekja til þess jarð- hitakerfis, sem Rauðafellseldstöðin geymir. Hin tiltölulega lausu, ungu berglög innihalda svo nrikið af köldu vatni að íblöndun og kæling verður mikil. Efnagreiningar á þessu vatni gefa því ekki eins ábyggilegar upplýs- ingar, en benda hins vegar eindregið til þess að vatnið eigi rætur að rekja til jarðhitakerfis með verulega hærra hitastigi heldur en þarna er á yfir- borði. Komið hefur fram (persónulegar upplýsingar frá Hauki Jóhannessyni og Leó Kristjánssyni) að berglögin neðst í austurhorni Núpakotsnúps eru öfugt segulmögnuð. Ofan á efsta öfuga hraunlagið kernur jökulbergs- lag, sem rekja má inn eftir öllu fjallinu að austan. Mjög mikið er um innskots- lög og eitla í Steinafjalli að austan og talsvert um ganga og æðar. Sanra er að segja um Rauðafell að þar er mikið um ganga einkum norðan til. Þetta vekur grun um að í raun heyri þessi fjöll, Steinafjall og Rauðafell saman, séu bæði af sömu rótum runnin og að þau séu hluti af þessari megineldstöð. Tafla 1. Efnagreiningar á jarðhitavatni á Eyjafjallasvæðinu liefur Einar Gunnlaugsson gert og fara þær hér á eftir. — Chemical analysis of water from three hot springs. Seljavallalaug pH 8,14 Si02 102,60 p Na 211,20 K 3,70 Ca 9,50 Mg 0,600 co2 156,80 S04 219,80 h2s 0,10 C1 36,60 F 2,40 Kalsedón hiti 107°C Na/K” 65°C Kaldaklifslaug Innra-Tungugil 7,56 6,41 118,60 ppnt 132,00 ppm 207,00 ” 321,00 ” 7,80 ” 15,30 ” 36,00 ” 119,00 ” 5,100 ” 8,00 ” 195,00 ” 835,80 ” 300,00 ” 394,00 ” 0,10 ” 0,10 ” 39,10 ” 76,00 ” 2,11 ” 3,37 ” 117°C 125°C 113°C 130°C 5

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.