Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 31

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 31
6. mynd. Radon mælt í sýnum af jarðhitavökva, sem tekin eru úr borholu á Flúðum í Hrunamannahrepp. Örvarnar gefa til kynna hvenær jarðskjálftar urðu á Suðurlandsund- irlendi, einnig er sýnd stærð skjálftanna og fjarlægð upptakanna frá Flúðunt. Mikil radonaukning varð á undan skjálftahrinu í júlí og skjálfta í lok ágúst, en á undan skjálfta í nóvember minnkaði radon. Kippirnir áttu upptök efst í Holtum. Myndin er úr grein Egils Haukssonar og J. Goddard (1981). - Radon time series for 1978 from a drill hole in Flúðir, S-lceland. The arrows show tlie time ofearthquak.es in the South Iceland Seismic Zone. Magnitude of the events and the distance between the epicenter and the sampling station are also shown. Anomalies are seen before an earthquake swarm in July and single events in late August and November. From Hauksson and Goddard (1981). landi né nægileg mælitæki til að sýna þær breytingar sem búast mætti við. En jafnvel þótt ekki verði unnt að spá nákvæmlega um næsta skjálfta, þá skiptir miklu máli að fylgst sé náið með aðdraganda hans. Af því fengist dýrmæt reynsla, sem gæti komið öðr- um að notum, og ekki síst afkomend- um okkar þegar að því kemur að aftur má fara að búast við skjálftum á Suðurlandi. Á síðustu árum hafa jarðeðlisfræði- legar mælingar verið auknar nokkuð á Suðurlandi. Má þar nefna skjálftamæl- ingar, radonmælingar, þenslumæl- ingar og fjarlægðarmælingar (sjá 5. mynd). Jarðskjálftamælar eru nú á um 35 stöðum á landinu, og eru nokkrir þeirra á skjálftasvæði Suðurlands og í næsta umhverfi þess. Á skjálftasvæð- inu sjálfu eru mælar á Bjarnastöðum í Ölfusi, Selfossi og á Hellurn í Lands- sveit, í næsta unrhverfi eru mælar við Kaldársel, skíðaskála ÍR í Hamragili, í Menntaskólanum á Laugarvatni, á Árgilsstöðum í Hvolhreppi og í Selkoti undir Eyjafjöllum. Aðrir mælar á Suður- og Vesturlandi nýtast að sjálf- 25

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.