Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 33
athuga t.d. hvort grugg eða óeðlilegar
loftbólur séu í vatninu. Hér á landi eru
sögur um óeðlilega hegðun dýra á und-
an jarðskjálftum ekki algengar, en
talsverð áhersla virðist vera lögð á
slíkt í Kína. Á Suðurlandi ættu aðstæð-
ur til að fylgjast með dýrum að vera
mjög ákjósanlegar. Fleiri athuganir
mætti telja, en hér verður látið staðar
numið.
Samvinna vísindamanna og áhuga-
fólks við rannsóknir hefur oft gefist
vel, og á sumum sviðum, til dæmis við
jarðskjálftaspár, gæti hún verið ein af
forsendunum fyrir því að vel takist til.
Raunar er löng hefð fyrir slíkri sam-
vinnu hér á landi, og má þar nefna
rannsóknir í jarðfræði, jöklafræði og
jarðskjálftafræði.
í þessum pistli hefur verið fjallað
almennt unt jarðskjálftaspár og reynt
að skýra fræðilegar forsendur þeirra.
Þá var rakinn aðdragandi skjálftans
rnikla í Haicheng 1975, en þá var
tugum þúsunda mannslífa bjargað
með nákvæmri jarðskjálftaspá. Að
síðustu var rætt um jarðskjálfta á
Suðurlandi og möguleika okkar að sjá
þá fyrir. Rannsóknir á þessu sviði hafa
farið mjög vaxandi á síðasta áratug, og
er spáin í Haicheng glæsilegasta dæm-
ið um árangur af þeim. Ekki er vafi á
því, að verulegra framfara er að vænta
á næstu árum, eftir því sem meiri
reynsla fæst. Það skiptir okkur íslend-
inga miklu að fylgjast vel með framför-
um á þessu sviði; af því kynnum við að
hafa ómælt gagn. En við þurfum ekki
einungis að vera þiggjendur, hér höf-
um við betri möguleika en á flestum
öðrum sviðum til að leggja þungt lóð á
vogarskálarnar. Auknar rannsóknir á
aðdraganda næstu jarðskjálfta á
Suðurlandi kynnu að leiða til framfara
sem nýst gætu öllu mannkyni í baráttu
gegn mannskæðum vágesti.
HEIMILDIR
Aggarwal, Y.P., L.R. Sykes, J. Armbrust-
er & M.L. Sbar. 1973. Premonitory
changes in seisntic velocities and pre-
diction of earthquakes. — Nature 141:
101-104.
Egili Hauksson & J.G. Goddard. 1981.
Radon earthquake precursor studies in
Iceland. — J. Geophys. Res. 86: 7037—
7054.
Eysteinn Tryggvason. 1973. Seismicity,
earthquake swarms and plate boundari-
es in the Iceland region. — Bull.
Seismol. Soc. Am. 63: 1327-1348.
Eysteinn Tryggvason, Sigurður Thorodd-
sen & Sigurður Þórarinsson. 1958.
Greinargerð jarðskjálftanefndar um
jarðskjálftahættu á íslandi. — Tímarit
Verkfræðingafélags íslands 43: 81—97.
Haukur Jónhannesson, Sveinn P. Jakobs-
son & Kristján Sæmundsson. 1982.
Jarðfræðikort af íslandi, blað 6, Mið-
suðurland, önnur útgáfa. — Náttúru-
fræðistofnun íslands og Landmælingar
íslands, Reykjavík.
McCann, W.R., S.P. Nishenko, L.R. Syk-
es & J. Krause. 1979. Seismic gaps and
plate tectonics: Seismic potential for
major boundaries. - Pageoph. 117:
1082-1147.
Páll Einarsson & Jón Eiríksson. 1982.
Earthquake fractures in the districts
Land and Rangárvellir in the South
Iceland Seismic Zone. — Jökull 32:
113-120.
Páll Einarsson, Sveinbjörn Björnsson,
Gillian Foulger, Ragnar Stefánsson &
Þórunn Skaftadóttir. 1981. Seismicity
pattern in the South Iceland Seismic
Zone. - í: Earthquake Prediction- An
International Review: 141 — 151.
Maurice Ewing Series 4, American
Geophys. Union, Washington.
Press, F. 1975. Earthquake prediction. -
Scientific American 232 (5): 14-23.
Ragnar Stefánsson. 1979. Catastrophic
earthquakes in Iceland. - Tectono-
physics 53: 273—278.
Raleigh, B., G. Bennett, H. Craig, T.
Hanks, P. Molnar, A. Nur, J. Savage,
27