Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 45
skal. Fyrir vikið eru rafkraftarnir langdrægir, þótt auðvitað minnki þeir hratt með fjarlægð. Þær boðeindir, sem hafa massa, eru ævinlega gæddar ákveðinni lágmarksorku, þ.e. massa- orku. Slíkar launeindir geta ekki ferð- ast mjög langt án þess að brjóta um of lögmálið um varðveislu orkunnar. Þeir kraftar, sem eiga sér þungar boðeindir eru því skammdrægir eins og t.d. kjarnakraftarnir. I grófum dráttum má segja, að þvermál kraftsviðs umhverfis öreind standi í öfugu hlutfalli við massa tilsvarandi boðeindar. NIÐURLAG Ég ætla ekki að reyna að draga sam- an hér í lokin heilsteypta lýsingu á öreind. í því sem sagt hefur verið að framan rekast of mörg horn á til að slíkt sé gerlegt. Ég vil þó ítreka tvö höfuðatriði í tilveruhætti öreinda. Annars vegar er bylgju —agnar tvíeðlið og hins vegar sú staðreynd, að öreind verður ekki nema að takmörkuðu leyti greind frá launeindunum í tóminu um- hverfis hana. Hver sú eðlisfræðikenn- ing, sem sameinar þessa tvo eiginleika og er að auki í samræmi við afstæðis- kenninguna er óhjákvæmilega gífur- lega flókin. Að vísu hefur tekist að smíða slíkar kenningar, (sjá: Þórður Jónsson, Hvað er skammtasviðsfræði? Náttúrufræðingurinn, 51, bls. 123- 131, 1981.) enekki er þar meðsagt, að vandinn sé leystur. Erfitt er að sýna, að kenningar, sem uppfylla þessi skil- yrði séu sjálfum sér samkvæmar og í mörgum tilvikum er mjög vandasamt og jafnvel ókleift að beita þeim til að reikna út hegðun og eiginleika ör- einda. Ég hygg því, að öreindafræðin sé enn á bernskuskeiði. Verkefni og vandamál fræðigreinarinnar hafa verið skilgreind og skilin til nokkurrar hlítar. Drög liggja fyrir að úrlausn margra verkefna, en þeim er hvergi nærri lokið. Ovíst er, að þeim verði nokkru sinni lokið, því að t.d. gæti komið í ljós, að þær agnir, sem nú eru taldar öreindir, séu alls ekki öreindir, heldur samsettar. Ósvarað er spurn- ingunni, hvort til sé einhver ein heilsteypt kenning, er skýri hegðun allra öreinda og kraftsviða. Rannsókn- ir á áhrifum þyngdaraflsins á öreindir eru enn mjög skammt á veg komnar. Engin ástæða er því til að ætla, að þeir, sem fást við rannsóknir öreinda verði uppiskroppa með viðfangsefni á næstunni. Reynsla undanfarinna ára- tuga hefur verið sú, að fyrir hverja spurningu, sem svarað er, spretta upp margar nýjar. Hver nýr þekkingar- rnoli, sem finnst, sýnir okkur betur en áður, hve lítið við vitum um innsta eðli efnisins. ÞAKKIR Þessi grein er að stofni til erindi, sem flutt var í Ríkisútvarpinu í nóvember 1983. Ég þakka Jakobi Yngvasyni og Þorsteini Vil- hjálmssyni lestur handrits og gagnlegar ábend- ingar. Þórður Jónsson Raunvísindastofnun Háskólans Dunliaga 3 107 Reykjavík 39

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.