Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 47
Jón Jónsson:
Jörðin geymir gengin spor
Það er kunnara en svo að frá þurfi
að segja, að víða má finna í jörðu
leifar dýra og jurta, sem lifað hafa
jafnvel fyrir milljónum ára. Einnig hér
í okkar unga landi eru slíkar leifar vel
þekktar, og á ég þá fyrst og fremst við
surtarbrandinn. Á santa hátt má finna
merki um löngu liðna atburði, hvers-
dagslega atburði eins og för eftir
regndropa, sem féllu til jarðar fyrir
milljónum ára og fótspor dýra, sem
ekki eru lengur til. Stundum eru það
sporin ein, sem bera vitni um tilveru
þeirra.
Það er þó fremur fátítt að þúsund
ára gömul fótspor manna hafi komið
fram í dagsljósið. Þó eru nokkur dæmi
til um slíkt, og skal hér eitt rakið og
reynt að skyggnast inn í þá atburðarás,
sem á bak við það kann að liggja.
I útjaðri Managuaborgar í Nicarag-
ua, við stað, sem heitir Acahualinca,