Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 48

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 48
var um árabil numið byggingarefni, sem samanstóð af vikurlögum, sem voru orðin það föst í sér að hægt var að skera úr þeim steina, sem hlaða mátti úr. Með því að húða slíka veggi með kalki litu þeir þokkalega út. Þetta ónýta byggingarefni átti stóran þátt í hinum hörmulegu afleiðingum jarð- skjálftans, sem eyðilagði Managua þann 23. desember 1972. En gryfjan þar sem þetta efni var tekið segir merka sögu. Á botni gryfjunnar eins og hún er nú varðveitt er lag úr fínni ljósgulri eldfjallaösku. Hún varðveitir fótspor, líklega 12-15 manna, sem auðsjáanlega hafa verið á hlaupum all- ir í sömu átt. Einnig má þar greina spor eftir hund og líklega kind eða geit. Sporin eru eftir fullorðið fólk, en einnig má greina a. m. k. tvenn spor eftir börn og hafa þau greinilega verið látin hlaupa milli þeirra fullorðnu og í skjóli þeirra. Efnið, sem geymir sporin hefur nánast verið leðja, þegar þetta gerðist. Það má jafnvel greina leirslett- ur undan fótum fólksins. En hvað olli flóttanum? Einmitt það, sem varð til þess að jörðin geymir fótspor fólksins. Það er lag af svörtum vikri, sem hlýtur að hafa fallið bókstaflega á hæla fólks- ins, því spor þess í blauta leðjuna hafa ekki náð að síga saman áður. Vikurinn fyllti þau og því er það að þakka að þau eru enn varðveitt. Þetta vikurlag má sjá á myndinni neðst t. h. út við vegginn. Þarna virðist fólk hafa verið á flótta undan eldgosi og vikurfalli. Það grófur er þessi vikur að eldvarp- ið, sem hann er kominn frá getur ekki verið fjarri. í útjarði Managuaborgar er sprengigígurinn Laguna Tiscapa. Eins og nafnið sýnir er vatn í gígnum og lítur það út fyrir að vera djúpt. Svo virðist sem þarna hafi gosið aðeins einu sinni, en geta má þess, að ein af þeim fjórum sprungum, sem urðu í jarðskjálftanum 1972, liggur gegnum þennan gíg. Ekki eru nema réttir 3 km til Acahualinca frá Tiscapa og sýnist því líklegt að þar hafi gosið orðið. Spor fólksins stefna frá gígnum og í átt að Managuavatni. Augljóst er að gígurinn er ekki gam- all. Eitthvað um 9 öskulög eru í snið- inu, ofan við fótsporin og í jarðlaginu, sem efst er, hafa fundist leirkerabrot (keramik) sem hægt hefur verið að áætla aldurinn á og talin vera um 1000 ára gömul. Út frá því sýnist ekki vera órýmilegt að áætla aldur sporanna um 1700-2000 ára. 42

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.