Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 53
verði falið að halda áfam og auka þær
rannsóknir, sem nú eru hafnar á sela-
stofnum hér við land.“ Ekki verður betur
séð en sjávarútvegsráðuneytið liafi alger-
lega hundsað helstu niðurstöður þessarar
nefndar. Næst gerðist það að nefndin var
snarlega lögð niður og 16. ágúst 1979 var
skipuð ný nefnd, sem almennt hefur verið
kölluð Hringormanefnd. Nú brá svo við að
einungis voru fulltrúar fiskvinnsluaðila í
nefndinni, sem var skv. skipunarbréfi þá-
verandi sjávarútvegsráðherra Kjartans Jó-
hannssonar „ætlað að skoða sent gleggst
alla þætti þessa máls, þ.e. iífsferil hring-
ormsins, tímgun og leiðir til að stemrna
stigu við aukinni ormatíðni, ennfremur
alla möguleika á því að finna orma í fisk-
holdi og fjarlægja þá. Nefndinni er einnig
ætlað að hafa yfirumsjón með rannsóknum
sem þegar eru hafnar á vegum Hafrann-
sóknastofnunarinnar á selastofnunr við ís-
land“. Formaður nefndarinnar var skipað-
ur Björn Dagbjartsson, þáverandi aðstoð-
armaður sjávarútvegsráðherra. Ymsum
hefur þótt það einkennileg nrálsmeðferð
að setja nefnd hagsmunaaðila yfir rann-
sóknastofnun sem þegar hefur lögformlega
stjórn og ber að sjá um tilteknar rannsókn-
ir. Enda kemur fram í bréfi forstjóra Haf-
rannsóknastofnunar í árslok 1982 að ekk-
ert samráð var haft við stofnunina um
skipan Hringormanefndar og engin sam-
vinna hefur verið milli nefndarinnar og
Hafrannsóknastofnunar um selarannsókn-
ir. Enn einkennilegra er þó að Hringorma-
nefnd virðist vera, gagnstætt forvera sín-
um, ætlað að verða eilíft apparat ráðuneyt-
isins. Hún hefur þrifist sem eins konar
sjálfseignarstofnun í tíð tveggja sjávarút-
vegsráðherra til viðbótar, Steingríms Her-
ntannssonar og Halldórs Ásgrímssonar.
Hlutverk þessarar sjálfseignarstofnunar
hefur verið að nokkru leyti að gangast fyrir
rannsóknum og hefur nefndin ráðið sér
líffræðing í þessu skyni. Unt rannsóknirnar
er í sjálfu sér ekki nema gott eitt að segja.
Niðurstöður þeirra hafa verið settar fram í
skýrslum og nú á næstunni munu birtast
hér í Náttúrufræðingnum greinar sem
byggðar eru á þessum rannsóknum. Túlk-
un Hringormanefndar á rannsóknaniður-
stöðunum hefur hins vegar virst hæpin,
enda er það skjalfest að Hringormanefnd
var búin að ákveða að fara út í fækkunar-
aðgerðir áður en rannsóknirnar hófust.
Rannsóknirnar eru því einungis einn þátt-
ur í því áróðurshlutverki sem nefndin hef-
ur tekið sér (væntanlega í krafti þess að
ráðuneytið lítur á hana sem sjálfseignar-
stofnun). Peint er ætlað að villa mönnunt
sýn á raunverulegu viðfangsefni Hring-
ormanefndar sem er gríðarstór tilraun til
þess að draga úr fjölda sela hér við land.
Pessi tilraun er þó svo illa úr garði gerð að
fyrirfrant er vart við því að búast að hún
skili marktækum niðurstöðum. Menn
skulu því vera við því búnir að hlýða á
áframhaldandi útúrsnúninga frá Hring-
orntanefnd þegar spurt verður hvort fækk-
unaraðgerðir hennar hafi skilað árangri.
í því hlutverki að stunda áróður hefur
Hringormanefnd hins vegar tekist svo vel
upp að undrum sætir. Hefur nefndinni tek-
ist þar að ýta af stað ýmsum vafasömum
fréttum sem síðan hafa öðlast eigið líf og
hlaðið utan á sig í meðförum fjölmiðla og
stjórnmálamanna. Mér er til efs að sú að-
ferð að endurtaka sömu lygina nógu oft
hafi áður verið notuð hér á landi af jafn-
mikilli einbeitni og með jafnmiklunt árangri.
Lygisögur um seli dynja á okkur í fjöl-
miðlum og eru farnar að keppa við drauga-
sögur um fyrsta sætið í þjóðtrú samtímans.
Eitt besta dæmið um árangur Hringorma-
nefndar á þessu sviði er að finna í ritstjórn-
argrein f Morgunblaðinu miðvikudaginn
24. mars 1982 undir fyrirsögninni Þorska-
stríð og selastríð. Þar segir m.a.:
„...Segja má að áhrif sela séu tvíþætt, þeir
eru hýsill fyrir hringorma og éta mikið
magn af fiski. Vísir menn hafa komist að
þeirri niðurstöðu, að í ár verði tíndar 130
milljónir hringorma úr þorski í frystihúsunr
víða urn land. Þá hefur einnig komið fram,
að hér við land éti selurinn um 50 þúsund
tonn af nytjafiski. Er það yfirleitt smár
fiskur, svo talið er, að við töpum nú um
100 þúsund tonnum af nytjafiski í selinn á
hverju ári. Vegna samdráttar í selveiðum
er talið líklegt, að selastofninn við landið
vaxi. Hagsmunasamtök í sjávarútvegi
hvetja til aukinnar selveiði og er nú rætt
um að verðlauna seladráp. — ...Þótt Bretar
væru ýmsum til ama, var þó til dæmis sá
47