Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 16
20 25 30 40 50 60 70
Lengd skarkolo (cm)
13. mynd. Meðalfæðunám skarkola eftir
lengd 1980—81. — The average composi-
tion of the food of plaice Pleuronectes
platessa L. in relation to predator length in
1980-81.
ar fiskbráð á stundum. Af einstökum
fæðuhópum beinist afrán þessara fiska
einkum að burstaormum og skrápdýr-
um. Þetta gæti leitt til samkeppni um
slíka bráð. Þó er líklegt að ræningj-
arnir forðist samkeppni um fæðu með
sérhæfingu á sérstakri tegund bráðar.
Ljósáta, loðna, rækja og burstaorm-
ar er sú bráð, sem flestir ræningjar
neyta. Ljósáta og loðna virðast vera
nýtt mest ef mið er tekið af stærð
fiskstofnanna og fæðuvali þeirra.
Þrír stærstu fiskstofnarnir, þorskur,
karfi og ufsi, sækja fæðu sína einkum
uppsævis, en minni stofnarnir eru háð-
ari botnlægri bráð (14. mynd). Þetta
bendir til þess að lífríki og fæðukeðjur
uppsjávarins hafi afgerandi þýðingu
sem líffræðilegur grundvöllur fisk-
stofna og fiskveiða.
Þessir fiskstofnar uppsævisins hljóta
að vera mjög háðir lifnaðarháttum
bráðarinnar svo sem dægurgöngum,
enda er það reynsla fiskimanna að ein-
mitt þessir fiskar eru misveiðanlegir
eftir tíma dags. Þorskur veiðist t. d. í
flotvörpu aðallega að degi til og er þá
oft í námunda við eða innan um loðnu-
torfur.
Fæðunám þorsksins beinist einkum
að fiskstofnum, sem teljast til nytja-
stofna á íslandsmiðum eða á alþjóð-
legum hafsvæðum. Af þessu er ljóst að
afrán þorsks hlýtur að teljast allrar
athygli vert, sem mikilvægur hluti af
vistkerfi hafsins, og sér í lagi vegna
„samkeppni“ þorskstofnsins og fisk-
veiðanna um mikilvæga nytjastofna
okkar Islendinga.
Fæðunám þorskstofnsins er mikil-
14. mynd. Fæðuvistfræðileg tengsl ræningja og bráðar á grundvelli meðalfæðunáms (%
þyngd fæðu) 1980-1981. Hlutfallsleg stofnstærð (lífþyngd) ræningja er gefin til kynna
með breidd súlna. Flatarmál súlna gefur því til kynna hlutfallslegt álag af völdunt afráns
tiltekins ræningja. - The average weight percentage of prey groups in 1980-1981 for the
different predator species. The relative size ofeach predator stock is indicated by the width
of the respective columns.
114