Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 35
Ágúst H. Bjarnason:
Fléttan
Lobaria
fundin
Til ættkvíslarinnar Lobaria
(Schreb.) Hue teljast nokkrar stór-
vöxnustu fléttur í Evrópu og vaxa þær
jafnan þar sem úrkoma er mikil. Þess
má og geta, að fyrir um sextíu árum
voru tegundir ættkvíslarinnar miklu
mun algengari til að mynda á Bret-
landseyjum en nú, því að þær þola illa
að andrúmsloft spillist.
Ættkvíslin er ekki allsendis óþekkt
hér. William J. Hooker (1913), grasa-
fræðingur, sem kom hingað til lands
laetevirens
á íslandi
1809, taldi sig finna tegundina L. scro-
biculata (Scop.) D.C. í Reykjavík og
er hennar getið í nokkrum fléttulistum
eftir það. (Sjá m. a. Grönlund 1870,
Deichmann Branth 1903 og Gallöe
1920.) Ýmsir drógu þó fund Hookers í
efa, uns Hörður Kristinsson (1964)
fann tegundina í Berudal á Snæfells-
nesi 1963.
Þann 16. ágúst 1971 athugaði ég
gróður í Lambafitjarhrauni á Land-
mannaafrétti í Rangárvallasýslu og
1. mynd. Fléttan Lobaria laetevirens úr Lambafitjarhrauni. — The lichen Lobaria
laetevirens from the Lambafitjarhraun lava. (L)ósm.Iphoto Ágúst H. Bjarnason.)
Náttúrufræðingurinn 55(3), bls. 133-136. 1985 1 33