Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 43

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 43
J 1 mm 1. mynd. Húsamaur Hypoponera punctatissima, vængjuð drottning. - Hypoponera punctatissima, a winged queen. tímum árs. Er þá um að ræða vængj- aða maura, þ.e. nýklaktar drottning- ar. Sunnar í Evrópu koma nýju drottn- ingarnar fram í júlí og ágúst (Larsson 1943). Hér á landi lifir húsamaurinn við nokkuð stöðug skilyrði allt árið. Nýjar drottningar klekjast því á öllum tímum árs. Mauranna gætir þó mest frá vori og fram á haust, en á þeim tíma hafa flestar kvartanir borist okk- ur (2. mynd). Hlutverk nýju drottninganna er að annast dreifingu tegundarinnar. Þær yfirgefa búin sem ólu þær, til að stofna ný bú. En fyrst verða þær að frjóvgast. Við höfum ekki fundið neinar upplýs- ingar um það, hvar frjóvgunin fer fram hjá húsamaurunum. Þó er vart um marga möguleika að ræða. Hjá fé- lagsskordýrum hagar að öllu jöfnu þannig til, að nýjar drottningar yfir- gefa búin fljótlega eftir að þær klekjast til að forðast það, að frjóvgun eigi sér stað á milli systkina. Maurar eru yfir- leitt vængjalausir, en til að auðvelda dreifingu nýju drottninganna hafa þær 141

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.