Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 44

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 44
1. tafla. Fundarstaðir húsamaurs á íslandi ásantt fjölda húsa og fyrsta fundartíma á hverjum stað fram til ársloka 1984 (skv. greiningu Petersens (1956) og greiningum á Tilraunastöðinni að Keldum, Náttúrufræðistofnun íslands og Náttúrugripasafninu á Akureyri). - Localities in Iceland where Hypoponera punctatissima has been recorded. Staðir Localities Fjöldi húsa No of houses Fundinn fyrst First found Borgarfjörður 1 fyrirIbefore 1956 Reykjavík 44 1974 Selfoss 4 1975 Hafnarfjörður 4 1977 Garðabær 3 1978 Akureyri 8 1979 Keflavík 2 1979 Kópavogur 2 1982 Dalvík 1 1983 Hveragerði 1 1983 Seltjarnarnes 1 1983 Sauðárkrókur 1 1984 Siglufjörður 1 1984 vængi, sem þær síðan bíta af sér eftir að frjóvgun hefur farið fram, eins og áður var getið. Þeir maurar, sem fólk verður vart við, eru undantekningalítið vængjaðir. Er því um að ræða nýklaktar drottn- ingar, sem eru að dreifa sér burt frá uppeldisstöðvunum. Þær hafa enn ekki frjóvgast. Karldýrin eru, eins og fyrr var getið, vængjalaus og hafa lítil augu. Það má því líklegt telja, að þau séu lítt gefin fyrir ferðalög. Af þessu má ráða, að ófrjóvgaðar drottningar verði að leita uppi bú með karldýrum til að verða frjóvgaðar. Að því marki náðu er annað hvort um það að ræða, að þær setjist að í því búi og leysi eldri drottningu (eða drottningar) af hólmi eða skríði burt og myndi nýtt bú ann- ars staðar. Eins og fyrr getur er það algengast, að húsamaurarnir taki sér bólfestu í húsgrunnum hér á landi. Þær drottn- ingar, sem koma upp í íbúðirnar, eru ekki líklegar til frekari dáða, þar sem litlar líkur eru til þess, að þær nái að frjóvgast. Aðrar drottningar koma aldrei upp og ná því e.t.v. að finna sér maka niðri í grunninum. Líklegt er, að búunum þar fjölgi smám saman. Þess var áður getið, að á hverjum stað verð- ur mauranna venjulega aðeins vart í skamman tíma á ári hverju. 1 þeim tilfellum er sennilega um eitt eða örfá bú að ræða. Ef maurarnir eru tíðari gestir er líklegt, að mörg bú geti verið til staðar, sem framleiða nýjar drottn- ingar á mismunandi tímum árs. Dreifing mauranna getur eflaust far- ið fram á margan hátt. Sennilega bíta drottningarnar af sér vængina strax að lokinni frjóvgun, þannig að þeir nýtast væntanlega ekki til frekari dreifingar. Helst má hugsa sér þrjár dreifingar- leiðir, og er þá fyrst og fremst tekið mið af aðstæðum í Reykjavík. í fyrsta lagi er ljóst, að húsa- maurarnir koma helst upp í eldri hús- um, þar sem skólplagnir eru farnar að gefa sig. Einnig hefur þeirra orðið vart í nýrri húsum, þar sem húsgrunnar hafa sigið. Á 3. mynd má sjá þekkta 142

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.