Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
79
injög teygjanlegu efni. Þar utan á er himna, sem er mynduð úr
harpixefnum og eggjahvítuefnum.
Það eru þessar smáagnir, sem mynda kátsjúkið. Mjólkursafinn
úr trjiánum, eða latexið, inniheldur um 40% af þeim, en afgang-
urinn, 60%, er vatn.
Upphaflega var latexið sjálft notað til framleiðslu á þeim mun-
um, sem úr kátsjúki voru gerðir. En þar sem ýms vandkvæði voru
á því að flytja það langar leiðir án þess það skemmdist, og auk þess
kostnaðarsamt að flytja með hverju tonni af kátsjúki tvö tonn
af vatni og þar til viðbótar dýrar og þungar umbúðir um fljótandi
vöruna, hefir það verið venja alll fram á síðustu ár að fella kát-
sjúkið út úr mjólkursafanum eða latexinu.
Nú á síðustu árum hefir sá háttur verið tekinn upp á ný, að
vinna úr latexinu, en ekki útfelldu kátsjúkinu, en þó er það ekki
i stórum stíl enn sem komið er. Þá er venjulega soðið nokkuð af
vatninu í latexinu burtu, og þetta niðursoðna latex síðan flutt til
Evrópu eða Ameríku, þar sem það er notað til vinnslu. í latexið
er þá bætt einhverju efni, sem ver kátsjúkið frá því að falla út;
mjög oft er ammóníak notað í þessu skyni.
Ctfellingin á kátsjúkinu úr mjólkursafanum er fyrsti þáttur-
inn í vinnslu kátsjúksins, og fara gæði þess varnings, sem síðar
er úr þvi gerður, oft mikið eftir því, hvernig þessi útfelling er
framkvæmd. Útfellingin þarf þess vegna að vera vandvirknis-
lega gerð, enda liafa margar mismunandi aðferðir verið viðhafð-
ar í þessu skyni.
Þess var áður getið, að frumbyggjar Braziliu, Majarnir, hafi
fellt kátsjúkið út úr mjólkursafanum með því að „reykja“ saf-
ann, þ. e. a. s. safinn var látinn leka smátt og smátt á prik, en
prikinu var snúið i heitum reylc af sérstölcum viðartegundum og
svonefndum úríkúrínhnetum. I þessum reyk féll kátsjúkið út úr
safanum, það varð að föslu og samfelldu efni, en vatnið rann
hurtu eða gufaði upp. — Þessi aðferð er lítið eitt notuð enn.
Á ekrum Asíu er mjólkursafinn venjulega hleyptur með sýru,
og er þá oftast notuð ediksýra eða maurasýra. Hlaupið, sem
myndast úr safanum með sýrunni, er pressað á milli valta, þveg-
ið vel með vatni og síðan þurrkað. Ef það er þurrkað í heitu lofti,
er kátsjúkið kallað crepe-kátsjúk — kátsjúkfeldurinn er í smá-
fellingum, og er nafnið dregið af því —, en ef kátsjúkfeldurinn
er þurrkaður í heitum reyk, er það kallað smoked sheet, það er
reyktur feldur; síðarnefnda kátsjúk-tegundin er auk þess felld
út eða hleypt með nokkuð öðrum hætli en sú fyrrnefnda. — Þetta