Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 38
84
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
þess, kol og kalk. Úr kolunum og kalkinu er fyrst búið til efni,
sem menn alinennt kannast við, og er það kalsíumkarbkl (þetta
efni er reyndar oftast kallað karbítur hér á landi, en það er rangt;
það heitir karbíd, og nánar tiltekið kalsíumkarbíd, því lil eru
fleiri karbíd, og er nafnið livorugkyns, en ekki karlkyns). Ef helll
er valni á karbidið, myndast úr því lofttegund, sem kölluð er
acetylen; þessi loftlegund mun einnig vera alþekkt, þvi hún er
brennanleg og er ýmist notuð til logsuðu eða til ljósa, t. d. lil ljósa
á reiðhjólum eða til vitaljósa. Úr þessu acetyleni er búin lil loft-
tegundin bútadíen, og er aðferðin til þess margbrotin, en þó lengi
þelckt. Með því að meðhöndla þessa lofttegund með hvetjandi
efnum við viss skilyrði, ganga mólekúl hennar innbyrðis í sam-
band hvert við annað, og ef þessi mólekúl eru nógu mörg, verður
lofttegundin að seigu og föstu efni, eða kátsjúkeftirlikingunni
búna. Þessi kátsjúkeftirlíking ér þó ekki jafngóð og náttúrlegt
kátsjúk, liún liefir hagkvæma eiginleika náttúrlega kátsjúksins
ekki í jafnríkum mæli og það; t. d. er ekki hægt að búa til úr lienni
harðgúmmí eða ebónit, munir úr þessari eftirlíkingu eru ekki
nærri því eins endingargóðir og úr náttúrlegu kátsjúki o. s. frv.
Hofmann lét þess vegna ekki staðar numið bér, heldur hélt rann-
sóknum sínum áfram enn um tvo áratugi, en þá var hnúturinn
leystur. Og á bílasýningunni, sem haldin var í Berlín 1936, voru
sýndir hjólbarðar úr tilbúnu kátsjúki, sem höfðu verið notaðir
til aksturs meira en 1 milljón kílómelra vegalengd, og reyndust
þessir hjólbarðar betur en hjólbarðar úr náttúrlegu kátsjúki, sem
reyndir höfðu verið til samanburðar. Hér er því ekki lengur um
eftirlíkingu að ræða, sem er að meira eða nxinna leyti lélegri en
nátlúrlega efnið, lieldur um sama eða samskonar efni og það nátt-
úrlega; það er ekki gervikátsjúk eða gervigúmmí, heldur tilbúið
lcátsjúk eða tilbúið gúmmí.
Gamla kátsjúkeftirlíkingin hafði verið gerð úr bútadieni án
annarra efna, sem ætlað var að ganga inn i hið nýja mólekúl eftir-
líkingarinnar. Á þennan hátl hefir enn ekki tekizt að framleiða
annað en kátsjúkeftirlíkingar, og eru hinar nýju kátsjúktegundir
Hofmanns því ekki gerðar úr bútadíeni einu saman, heldur úr
bútadíeni með öðrum efnum, sem ætlað er að gangi inn i kát-
sjúkmólekúlið, svo það geti orðið nógu stórt. Með því að hafa
þessi viðbótarefni mismunandi er bægt að framleiða kátsjúk með
mismunandi eiginleikum, og er kunnugt um tvær tegundir kát-
sjúks, sem framleiddar eru með þessum hætti. Önnur tegundin,
svokallað búna S, sem aðallega er nolað í bílahjólbarða, er búið