Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 22
116
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
stellingu og séu einmitt það gosefni, sem Hverfjall varð til úr, að
fjallið sé, með öðrum orðum, myndað við móbergsgos.
Hins vegar má telja víst, að á litlu dýpi undir Hverfjalli liggi
eldra móberg og sri staðreynd, að það hefur ekki sjáanlega ruðst
upp í gosinu bendir til, að um stórfenglegt sprengigos hafi alls ekki
verið að ræða.
í því sambandi er enn á það að h'ta, að móberg I jallsins er.gert úr
fíngerðu efni, þ. e. eldfjallaösku, og askan hefði vafalaust jafnazt
út yfir stórt svæði, ef hún hefði komið upp í sundurlausu ástandi
í kraftmiklu gosi, og þá hefði hinn granni garður kringum gíginn
ekki getað orðið til. Til þess að skilja myndnn Hverfjalls verður
því sýnilega að leita fyrir sér meðal rólegri gostegunda.
Við athuganir á móberginu almennt hef ég komizt að þeirri nið-
urstöðu, að sumt móberg sé komið upp úr jörðinni sem þykkur og
hægt fljótandi öskugrautur. Það er ekki fjarri lagi að hugsa sér
eitthvað slíkt í sambandi við Hverfjall, hafa þann möguleika að
minnsta kosti í huga. En því miður eru litlar frekari upplýsingar
fáanlegar af athugunum á Hverfjalli sjálfu, vegna ])ess hve það er
lítið sundurskorið.
Þess vegna sný ég mér að Hrossaborg, sem virðist vera náskyld
Hverljalli að uppruna. Gíggarðurinn er þar, að austanverðu, etinn
niður að jafnsléttu, og hleðsla hans kemur glögglega í ljós.
Garðurinn er þannig gerður, að neðst og innst er hann hlaðinn
upp úr gjalli og hraunkleprum og einstaka hrauntungum og óveru-
legum hraunlögum. Innan um og saman við þessi gosefni er mikið
af brúnahvössum grágrýtismolum, sem eru úr öðru efni en hraunið.
Molarnir hafa stundum umlukizt fljótandi hrauninu, en þó ekkert
bráðnað við það. Hraunið hefur því ekki verið mjög heitt né þunn-
fljótandi.
Þegar ofar dregur, gengur ]retta gjall- og kleprahrúgald yfir í fín-
gerðari gjalllög, án nokkurra skarpra móta. Gjalllögin hallast út
frá gígnum, og í þeim er brúnt bindiefni, sem ler vaxandi, eftir því
sem ofar dregur. Ofan til eru lögin orðin eiginlegt, brúnt móberg.
I móberginu er, eins og í gjallinu neðár, mjög mikið af hvass-
brýndum basaltmolum og björgum, sömu gerðar og grágrýtið um-
hverfis fjallið.
Það grágrýti nær sem lag mikilli útbreiðslu á [ressum slóðum og
er vafalaust eldra en Hrossaborg.